Fargjöld til Reykjavíkur hækka 22. desember 2008 03:15 Akurnesingar eru margir hverjir óánægðir með mikla hækkun fargjalda í strætisvagna til Reykjavíkur. fréttablaðið/hari
Mikil hækkun verður á fargjöldum í strætisvagna á milli Akraness og Reykjavíkur frá og með 2. janúar næstkomandi. Stakt fargjald hækkar um 200 prósent, úr 280 krónum í 840 krónur. Tímabilskort hækka minna. Kurr er í Akurnesingum með þessa hækkun og varð hann til þess að Gísli S. Einarsson bæjarstjóri og Karen Jónsdóttir, formaður bæjarráðs, héldu fund með bæjarbúum um síðustu helgi. Gísli segir að óhjákvæmilegt hafi verið að hækka fargjöldin. „Leggurinn frá Grundahverfi til Akraness kostar 33 milljónir króna. Nú þurfum við að greiða helminginn af þeirri upphæð, sem er eðlilegt. Það þýðir að við verðum að hækka gjaldskrána sem þessu nemur.“ Gísli segir að ferðir á milli Kjalarness og Akraness hafi verið tilraun. Mun meiri aðsókn hafi verið í þær en búist hafi verið við. „Það lá alltaf fyrir að þetta var tilraunaverkefni. Nú greiðir sveitarfélagið niður 1/3 af leiðinni þannig að heildarhækkun verður tvöföld en ekki þreföld.“ Tveggja vikna kort kostar eftir hækkun 7.000 krónur, eins mánaðar kort 11.200, þriggja mánaða 25.400 og níu mánaða 61.000 krónur. „Ferðin kostar þá ekki nema 162 krónur,“ segir Gísli, og vísar til þess að farið sé fram og til baka alla virka daga.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Sjá meira