Nýja Kópavogslaugin kostaði milljarð Atli Steinn Guðmundsson skrifar 12. maí 2008 16:32 Gunnar Birgisson bæjarstjóri. MYND/Vilhelm Gunnarsson
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnaði ný sundlaugarmannvirki í Sundlaug Kópavogs við Borgarholtsbraut við hátíðlega athöfn í gær. Var opnunin rúsínan í pylsuendanum á menningarhátíð Kópavogsbæjar, svonefndum Kópavogsdögum. Gunnar Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, hélt ávarp við opnunina og kom þar fram að heildarkostnaður við nýju sundlaugina væri nær milljarði króna. Hefði bærinn varið sem að meðaltali næmi um milljarði á ári til byggingar íþróttamannvirkja árin 2002 til 2008 en heildarkostnaðurinn við þann lið væri á sjöunda milljarð króna á tímabilinu. Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs Kópavogs, lét þau orð falla að góð aðstaða til fjölbreyttrar afþreyingar skilaði sér í ánægðari íbúum og nú hefðu á einni viku þrjú mannvirki verið tekin í notkun í bænum, ungmennahús, áhorfendastúka við Kópavogsvöll og sundlaugin. Séra Ægir Sigurgeirsson blessaði mannvirkin og Skólahljómsveit Kópavogs lék. Af þessu tilefni er í dag ókeypis í sund í Sundlaug Kópavogs og Versölum.Samkvæmt upplýsingum frá Kópavogsbæ eru helstu tölulegar staðreyndir laugarinnar þessar: Allt vatn er upphitað kalt vatn Vatnsrör og önnur rör 18.000 m Rafmagns- og stýrilagnir 40.000 m Steypumagn 1.800 m3 Steypustyrktarjárn 190.000 kg Heitavatnsnotkun 16 l/s eða 58 m3/klst., eins og 200 einbýlishús Vatn í nýjum pottum og laugum 725 m3 65 dælur fyrir nýju laugarnar Vatn í 50 m lauginni 1.800 m3 Hreinsikerfi fyrir nýju pottana og laugarnar (hringrás) 475 m3/klst. Hreinsikerfi fyrir 50 m laugina (hringrás) er 360 m3/klst. Kaldavatnsnotkun (mesta samtímarennsli) er 16 l/s eða 58 m3/klst. Vatnsrennsli í nýju vatnsrennibrautunum er 250 m3/klst. Loftflæði loftræstikerfis 55.000 m3/klst.
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Innlent Fleiri fréttir Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Sjá meira