Hreinn Loftsson vill kaupa Morgunblaðið Breki Logason skrifar 1. desember 2008 22:48 Hreinn Loftsson
Hreinn Loftsson stjórnarformaður og aðaleigandi Birtíngs segir marga kosti fylgja sameiningu félagsins og Árvakurs. Hann staðfestir í samtali við Vísi að Birtíngur hafi óskað eftir viðræðum við lánardrottna Árvakurs um möguleg kaup á útgáfu Morgunblaðsins. Hreinn segir að góður árangur hafi náðst í hagræðingu og sparnaði hjá Birtíngi undanfarið. „Útgáfustarfsemi fyrirtækisins sýnist mér falla vel að Morgunblaðinu og ekki spurning að þessir miðlar eiga vel saman. DV hefur verið að vaxa ásmegin að undanförnu og hefur verið tryggð frjáls ritstjórnarstefna sem þarf ekki á neinn hátt að vera hin sama og hjá Morgunblaðinu, enda um ólíka miðla að ræða og sjálfstæði ritstjórnanna yrði tryggt," segir Hreinn. Hann bætir því við að Morgunblaðið sé varfærið og traust í fréttaflutningi sínum en um leið vettvangur frjálsra skoðanaskipta þar sem öllum er gefinn kostur á að setja fram sjónarmið sín, innan eðlilegra velsæmismarka. „Þetta verður að varðveita og ekki spurning að það verður gert í hugsanlegu sameiginlegu eignarhaldi." Hreinn segir að áherslur sínar hjá Birtíngi hafi veirð að tryggja DV og tímaritunum rekstrargrundvöll og það yrði einnig meginmarkmiðið hvað snertir Morgunblaðið. „Unnið er að því að safna saman hópi fjárfesta sem vilja koma að slíkri útgáfu og ekki spurning að slíkur hópur mun forða blaðinu frá þeim örlögum að verða málgagn þröngs hóps í Sjálfstæðisflokknum." Aðspurður hverjir muni hugsanlega vera í þeim hópi vill Hreinn ekki gefa það upp að svo komnu máli. „Morgunblaðið verður að standa undir því að vera blað allra landsmanna. Þá verður að undirstrika að þó að ég hafi haft og hafi tengsl við Baug Group hf. sem lögmaður og hluthafi á undanförnum árum að þá hafa orðið skýr skil á milli þess fyrirtækis og útgáfufélagsins Nýrrar sýnar, sem gefur út Fréttablaðið og kem ég þar hvergi nærri. Ekki verður því séð að um neinar samkeppnislegar hindranir væri að ræða þó að af slíkum samrekstri og samstarfi yrði."
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira