Verkföll flugumferðarstjóra munu skaða íslenskt efnahagslíf 19. júní 2008 18:24
Samtök atvinnulífsins hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna boðaðra verkfalla Félags íslenzkra flugumferðarstjóra. Þar segir m.a að verkföllin muni valda íslensku efnahagslífi miklu tjóni og skaða orðspor þjóðarinnar. Það sé það síðasta sem þjóðarbúið þarf á að halda nú. Yfirlýsinguna í heild sinni má sjá hér að neðan: Félag íslenzkra flugumferðastjóra (FÍF) hefur boðað til 20 sjálfstæðra verkfalla frá 27. júní - 20. júlí til að knýja á um samþykkt krafna þeirra í viðræðum við Samtök atvinnulífsins og Flugstoðir ohf. Í aðalatriðum fela kröfur félagsins í sér u.þ.b. 30% sérstaka hækkun launa auk ýmissa breytinga sem leiða myndu til verulegra skertra stjórnunarheimilda ef á þær yrði fallist. Launakrafa félagsins er byggð á túlkun á 11 ára gamalli úttekt á réttarstöðu flugumferðastjóra sem unninn var á grundvelli þess að flugumferðastjórar höfðu í reynd ekki verkfallsrétt á þeim tíma. Í ljósi þess er skýrt að umrædd úttekt hefur enga þýðingu nú í viðræðum FÍF við Samtök atvinnulífsins og Flugstoðir ohf. Samkvæmt upplýsingum Kjararannsóknarnefndar opinberra starfsmanna námu heildarmánaðarlaun flugumferðarstjóra að meðaltali 809 þúsund krónum í júní 2007 sem skiptust þannig að dagvinnulaun voru 450 þúsund, vaktavinnu- og önnur laun 188 þúsund og yfirvinnulaun 171 þúsund. Kaupmáttur dagvinnulauna hópsins hafði vaxið um 172% frá árinu 1990 samanborið við 102% hjá opinberum starfsmönnum í heild. Þessar tölur sýna ljóslega að hópurinn er vel settur miðað við aðra og hefur notið hagstæðrar þróunar á undaförnum einum og hálfa áratug. Samningaviðræður Samtaka atvinnulífsins og Flugstoða hafa staðið frá janúar síðastliðnum. Í þeim viðræðum hafa flugumferðastjórum verið boðnir skammtímasamningar sem eru sambærilegir við þá samninga sem aðrar flugstéttir hafa samþykkt á undanförum mánuðum. Einnig hafa þeim verið boðnir samningar til lengri tíma, allt að fjögurra ára. Samtök atvinnulífsins og Flugstoðir hafa teygt sig eins langt og mögulegt er í viðleitni sinni til að ná samningi við flugumferðastjóra. Því miður hafa þær tilraunir ekki borið neinn árangur. Félag íslenzkra flugumferðastjóra verður að gera sér grein fyrir því að sérstök launahækkun þeim til handa myndi vega að þeirri launastefnu sem myndast hefur og mynda nýja viðmiðun. Samtök atvinnulífsins bera þá ábyrgð gagnvart stéttarfélögum sem þegar hafa samið að launastefnan standist. Ný launastefna með meiri hækkunum en þegar hefur verið samið um myndi stuðla að enn frekari verðbólgu og stuðla að versnandi efnahagsástandi. Verkföll flugumferðarstjóra munu valda íslensku efnahagslífi miklu tjóni og skaða orðspor þjóðarinnar. Það er það síðasta sem þjóðarbúið þarf á að halda nú.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira