Innlent

Leitað til almannavarna Evrópulanda um hamfaraaðstoð

Frá jarðskjálftasvæðum í Kína.
Frá jarðskjálftasvæðum í Kína. MYND/AP

Ríkisstjórnir Kína og Búrma hafa beðið almannavarnir Evrópusambandsins um neyðaraðstoð og hefur Neyðarsamhæfingarstöðin í Brussel leitað til ríkja Evrópusambandsins og evrópska efnahagssvæðisins um aðstoð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Eins og kunnugt er hafa orðið miklar hamfarir í löndunum tveimur og óska þarlend yfirvöld eftir hvers kyns hjálpargögnum.

Við þessu hafa almannavarnir ESB brugðist og einnig boðið sérfræðiaðstoð í neyðarstjórnun, tæknilið með vatnshreinsitæki, fjarskiptatatæki, færanleg sjúkratjöld með búnaði og rústabjörgunarsveitir.

Þess má geta að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði í fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun að ef Kínverjar óskuðu eftir aðstoð alþjóðlegu rústabjörgunarsveitarinnar hér á landi væri sjálfsagt að kanna hvað hægt væri að gera.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×