Innlent

Eftirlýstur barnaníðingur handtekinn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Níðingurinn hefur verið handtekinn.
Níðingurinn hefur verið handtekinn.

Barnaníðingur sem alþjóðalögreglan INTERPOL lýsti eftir fyrr í vikunni var handtekinn í Bandaríkjunum í dag. Fréttastofa CNN hefur það eftir lögreglunni að maðurinn hafi verið handtekinn í Union City í New Jersey.

Lögreglan segir að maðurinn heiti Wayne Nelson Corliss, 57 ára leikari sem einnig gangi undir nafninu Casey Wayne. Interpol segir að maðurinn sé grunaður um að hafa misnotað þrjá unga drengi frá Suðaustur Asíu. Myndir sem fundist hafi í Noregi bendi til þess að maðurinn sé sekur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×