Fimm ára fangelsi fyrir lífshættulega hnífstungu 7. nóvember 2008 15:01
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær Sævar Sævarsson í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps en hann stakk erlendan karlmann í tvígang í miðbænum föstudaginn fyrir verslunarmannahelgi. Samkvæmt ákæru stakk Sævar fórnarlamb sitt einu sinni í bakið og einu sinni í handlegginn og var fórnarlambið í lífshættu á tímabili. Atvikið náðist á öryggismyndavél og var Sævar handtekinn ásamt þremur félögum sínum. Hann játaði brot sitt bæði hjá lögreglu og fyrir dómi. Samkvæmt framburði Sævars stóð hann í Bankastræti með vinum þegar maðurinn sem stunginn var gekk fram hjá. Sagði Sævar að sér hefði virst sem hann væri að leita að „kýtingi". Svo hefði hann heyrt hljóð eins og lamið hefði verið eða sparkað í bíl sem hann og félagi hans voru á. Elti hann fórnarlambið sem kastaði glerflösku í átt að honum og tók hann þá upp vasahníf. Í sundi við Alþjóðahúsið hefði fórnarlambið dottið en staðið upp og slegið frá sér. Þá sagðist Sævar hafa stungið fórnarlambið. Segir í dómnum að hnífurinn í málinu hafi ekki fundist en stungan í bakið hafi verið mjög djúp. Tilviljun ein hefði ráðið því að sú stunga hitti manninn fyrir á tiltekinn stað en ekki í stærri æðar í eða við lungað því þá hefði honum blætt út á mjög skömmum tíma. Sagði dómurinn því að árásin væri lífshættuleg og án nokkurs réttlætanlegs tilefnis. „Hefur hún samkvæmt gögnum málsins valdið brotaþola alvarlegu líkamstjóni og var til þess fallin að hafa í för með sér slæmar afleiðingar fyrir andlega heilsu hans," segir í dómnum. Fram kom í dómnum að Sævar hefði sjálfur orðið fyrir alvarlegri líkamsárás árið 1999 og hlotið við það vefrænan og sálrænan heilaskaða. Það lýsi sér meðal annars í ýktum viðbrögðum af hans hálfu finnist honum sér ógnað. „Þegar hins vegar til þess er litið hversu lítilfjörlegt það atvik er sem virðist hafa hrundið af stað þeirri atburðarás sem lyktaði með árásinni á brotaþola, og að ákærði framdi verknaðinn eftir að hafa elt brotaþola um alllangan spöl, með hnífinn í hendi, þykir ekki vera unnt að fallast á að þau refsilækkunarsjónarmið sem lýst er í greindum ákvæðum geti átt hér við," sagði í dómnum. Taldi því dómurinn fimm ára fangelsi hæfilega refsingu en frá þeim dómi dregst varðhald sem Sævar hefur sætt frá 6. ágúst. Auk fangelsisins var Sævar dæmdur til að greiða fórnarlambi sínu 830 þúsund krónur í bætur.
Mest lesið Íslendingur handtekinn á EM Innlent Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Hljóp á sig Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Fleiri fréttir Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Sjá meira