Innlent

Yfirvaldið á Álftanesi sagt hunsa Hæstarétt

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Miðskógar 8 Tölvugerð mynd sýnir húsið sem átti að byggja. Reisa má hús á lóðinn en þak á útsýnisturni var of hátt segir Hæstiréttur Íslands.
Miðskógar 8 Tölvugerð mynd sýnir húsið sem átti að byggja. Reisa má hús á lóðinn en þak á útsýnisturni var of hátt segir Hæstiréttur Íslands. Mynd/EON Arkitektar
Eigandi sjávarlóðarinnar á Miðskógum 8 og bæjaryfirvöld á Álftanesi deila enn um rétt hans til að byggja á lóðinni þrátt fyrir að Hæstaréttardómur sé fallinn í málinu.

Skipulags- og byggingarnefnd Álftaness hefur haft til umfjöllunar breytingar á deilskipulagi við Skógartjörn þar sem gatan Miðskógar er. Meðal breytinganna er að fella út byggingarlóð Henriks Thorarensens á Miðskógum 8 og skilgreina hana sem óráðstafað svæði.

Henrik hafi látið vinna fyrir sig teikningar að einbýlishúsi en fékk þær ekki samþykktar. Hófst þá málrekstur sem fyrir mánuði endaði með dómi Hæstaréttar sem tók undir með Henrik og sagði lóð hans vera byggingarlóð samkvæmt skipulagi frá árinu 1980. Hins vegar hefðu uppdrættir að húsi hans ekki samrýmst skilmálum deilskipulagsins og því rétt hjá bæjaryfirvöldum að synja honum um að reisa hús samkvæmt þeim teikningum.

Hæstiréttur segir þannig að byggja megi hús á lóðinni þótt þessar tilteknu teikningar hafi farið út fyrir skilmálana. Það lítur samt ekki út fyrir að Henrik fái að byggja því eins og áður segir hyggjast bæjaryfirvöld afmá byggingarlóð hans út af skipulaginu.

„Ef fyrirætlanir skipulags- og byggingarnefndar og sveitarfélagsins ganga eftir er alveg ljóst að umbjóðandi minn [Henrik] mun ekki láta þær yfir sig ganga,“ segir Guðmundur Ágústsson, lögmaður Henriks, í bréfi til bæjaryfirvalda á Álftanesi. Guðmundur segir breytingarnar á skipulaginu ekki aðeins svipta Henrik eignarrétti sínum heldur ganga þvert á dóm Hæstaréttar sem þannig væri gefið „langt nef“ auk þess sem bærinn yrði bótaskyldur.

Deilan um sjávarlóðina Miðskóga 8 hefur flækst af því að beint fyrir ofan lóðina býr Kristján Sveinbjörnsson, odddviti meirihluta Álftaneslistans og forseti bæjarstjórnar. Kristján hafði nýtt hina óbyggðu lóð, meðal annars fyrir vaðlaug sem hann útbjó.

Kristján hefur beitt sér gegn því að Henrik fái að byggja á lóðinni en hefur ávallt vísað á bug ásökunum um að afstaða hans markist af eiginhagsmunum. Segist hann einfaldlega telja að ný bygging rúmist ekki á lóðinni þar sem hún sé svo nærri sjávarkambinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×