Ómerkir úrskurð héraðsdóms um dánarbú Fischers 25. júní 2008 16:55 Bobby Fischer lést hér á landi þann 17. janúar. MYND/Pjetur
Hæstiréttur hefur ómerkt úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafnaði kröfum systursona Bobbys Fischer, fyrrverandi skákmeistara, um að dánarbú hans yrði tekið til opinberra skipta. Er málinu vísað aftur heim í hérað til löglegrar meðferðar. Systursynirnir kröfðust þess að dánarbú Fischers, sem lést þann 17. janúar hér á landi, yrði tekið til opinberra skipta. Eru helstu eignir dánarbúsins sagðar vera íbúð og innbú að Espigerði 4 auk verulegra fjármuna í banka í Sviss. Kröfu bræðranna hafnaði héraðsdómur á þeim grundvelli að hin japanska Myoko Watai segðist vera eiginkona Fischers. Það væri sýslumanns að krefjast opinberra skipta ef vafi léki á því hvort Watai hefði verið eiginkona skákmeistarans og hvort hann hefði látið eftir sig börn. Í dómi Hæstaréttar sagði að í málinu lægi ekkert fyrir um hvort Watai hefði verið veitt leyfi til einkaskipta á dánarbúi Fischers. Þótt slíkt leyfi hefði verið veitt myndi það þó ekki fá því breytt að mönnunum tveimur, sem kvæðust vera nánustu eftirlifandi skyldmenni Fischers og hefðu lagt fram gögn um þau fjölskyldutengsl, væri heimilt að krefjast fyrir dómi opinberra skipta á dánarbúinu ef þeir vefengdu réttindi Watai til einkaskipta á dánarbúi. Óvissa um það hvort aðrir kynnu að eiga réttindi til arfs eftir Fischer sem gengi framar réttindum systursonanna gæti ekki með réttu valdið því að héraðsdómari hafnaði þegar í stað kröfu þeirra um opinber skipti dánarbúsins. Var hinn kærði úrskurður því ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar. Við þetta má bæta að filippseysk kona og dóttir hennar gera kröfur í dánarbú Fischers en þær halda því fram að Fischer sé faðir stúlkunnar. Hún er sjö ára og heitir Jinky. Hana á Fischer að hafa getið með Marilyn Young árið 2001.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira