Pólverjinn lá í þrettán tíma án hjálpar 23. júní 2008 15:15
Pólverjinn sem lést á Landspítalanum í síðustu viku vegna höfuðáverka, lá í rúmi sínu í þrettán tíma þangað til að hann var fluttur á sjúkrahús. Hann féll í götuna fyrir utan Frakkastíg 8 mánudagskvöldið 9. júní og herma heimildir Vísis að fallið hafi verið hátt, nokkrir metrar. Viku seinna var slökkt á öndunarvélinni og maðurinn, sem var þrítugur að aldri, úrskurðaður látinn. Vinur Pólverjans og meðleigjandi að tveggja manna herbergi á fjórðu hæð á Frakkastígnum kom að honum á götunni og setti hann í rúmið. Það var ekki fyrr en þrettán tímum seinna sem lögregla og sjúkralið var kallað á staðinn. Maðurinn, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi undanfarna tíu daga vegna málsins, bjó tveimur herbergjum frá hinum látna. Hann hefur dvalið hér á landi í fjóra mánuði. Gæsluvarðhaldið rann út í dag og samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni verður óskað eftir farbanni yfir manninum. Eins og Vísir greindi fyrst frá í morgun er málið rannsakað sem mögulegt mannsdráp. Allir þrír hafa unnið hjá fyrirtækinu HB Innflutningur sem leigir mönnunum húsnæði á Frakkastígnum. Sveinn Ingvar Hilmarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, vildi ekkert tjá sig um málið þegar Vísir ræddi við hann í dag. Vatn og Land, félag í eigu feðganna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar, á húsið en Þorsteinn Steingrímsson, forsvarsmaður þess, sagðist ekkert þekkja til málsins enda hefði húsið verið í útleigu til HB Innflutnings í mörg ár.
Mest lesið Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Beint streymi frá Gleðigöngunni Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Endaði út af eftir framúrakstur Innlent Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Innlent Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Erlent Fleiri fréttir Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Sjá meira