Læknafélag Íslands skorar á stjórnvöld 31. október 2008 11:02
Læknafélag Íslands skorar á Alþingi og ríkisstjórn að standa vörð um heilbrigðiskerfi landsmanna nú þegar fjármálakreppa leggst með þunga á landsmenn. Í yfirlýsingunni segir að slæm andleg og líkamleg áhrif kreppunnar séu þegar byrjuð að koma fram. Því varar félagið eindregið við boðuðum niðurskurði í heilbrigðiskerfinu. Áskorunin fer hér á eftir í heild sinni: Stjórn Læknafélags Íslands skorar á Alþingi og Ríkisstjórn Íslands að standa vörð um heilbrigðiskerfi landsmanna. Nú þegar fjármálakreppa heimsins leggst með miklum þunga á Íslendinga og ljóst er að tími aðhalds og sparnaðar er framundan, er enn mikilvægara en áður að útgjöld ríkisins til heilbrigðismála dragist ekki saman. Samkvæmt alþjóðlegum skilgreiningum felst heilbrigði í andlegu, líkamlegu og félagslegu heilbrigði. Ljóst er að stórir hópar fólks munu bíða fjárhagslegt skipbrot og það getur haft áhrif á andlega og félagslega heilsu. Fólk horfir fram á óvissa og óörugga framtíð og slæm andleg og líkamleg áhrif þess eru byrjuð að koma fram. Ríkisstjórnin hefur í ljósi aðstæðna boðað niðurskurð á opinberum útgjöldum. Stjórn Læknafélagsins varar við því að útgjöld til heilbrigðismála verði lækkuð. Niðurskurður fjármuna til heilbrigðismála hefur slæm áhrif á heilsufar einstaklinga sem aftur hefur neikvæð áhrif á framlegð þeirra til þjóðarbúsins. Stjórn Læknafélags Íslands leggur áherslu á að framlög til heilbrigðismála verði fremur aukin til þess að hægt verði að mæta þeim heilbrigðisvandamálum sem fylgja núverandi fjármálakreppu. Stjórn Læknafélagsins telur að brýnt sé að halda áfram þeirri uppbyggingu sem á sér stað í heilbrigðismálum. Hún áréttar að nú sé enn mikilvægara en áður að hefja byggingu nýs húsnæðis undir starfsemi Landspítalans. Bygging spítala felur í sér mörg störf í byggingargeiranum á tímum þar sem atvinnuleysi verður umtalsvert. Það myndi hafa jákvæð áhrif á þá fjölmörgu sem að byggingunni ynnu. Ennfremur væri það yfirlýsing um áherslur á uppbyggingu íslensks samfélags á erfiðleikatímum og hefði jákvæð og löngu tímabær áhrif á heilbrigðisþjónustuna sjálfa. Þá telur stjórn Læknafélags Íslands mikilvægt að stjórnvöld finni verkefni við hæfi fyrir þau sem missa atvinnuna. Brýnt er að auka aðgang að námi eða starfsmenntun þann tíma sem starfsmissir varir. Er í því sambandi minnt sérstaklega á ungt fólk, sem atvinnuleysi hefur afar slæm áhrif á. Undir áskorunina ritar stjórn Læknafélags Íslands.
Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Sumarhús alelda á Þingvöllum Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Erlent Fleiri fréttir Sumarhús alelda á Þingvöllum Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Sjá meira