Segja íbúa við Þjórsá beitta opinberi valdbeitingu 29. ágúst 2008 15:20
Samtökin Sól á Suðurlandi segja íbúa við Þjórsá mismunað og beitta opinberi valdbeitingu. Samþykkt aðalskipulag Skeiða-og Gnúpverjarhrepps er nú til skoðunar hjá Skipulagsstofnun. Sól á Suðurlandi segja að í ljós hafi komið að skipulagsvinnan var ekki unnin í héraði eins og almennt gerist. Aðalskipulag sem gerir ráð fyrir þremur virkjunum í neðri hluta Þjórsár er unnið að ósk og á kostnað Landsvirkjunar. Samtökin segja enn verra var að athugasemdir sem almenningur gerði við skipulagið voru sendar til lögfræðings á vegum Landsvirkjunar, sem fyrirtækið greiddi fyrir að svara athugasemdunum á þann veg sem því hentaði. Þetta kemur fram í opnu bréfi Sólar á Suðurlandi til Árna Mathiessen fjármálaráðherra, Össurar Skarphéðinssonar, iðnaðarráðherra, Þórunnar Sveinbjarnardóttur, umhverfisráðherra, Einars K. Guðfinnssonar, landbúnaðarráðherra og Kristjáns Möller, ráðherra sveitarstjórnarmála. Sól á Suðurlandi segir að það hljóti að vera réttlætismál að hlutlausir aðilar fjalli um aðalskipulag sem hundruð manna hafa gert athugasemdir við. Að þeirra mati er það eðlileg krafa að ríkisstjórnin tryggi að þeir sem telja sér ógnað af fyrirhuguðum framkvæmdum Landsvirkjunar í byggðum Suðurlands, fái sama tækifæri til að verja sig og Landsvirkjun hefur fengið til að verja áætlanir sínar. Samtökin krefjast þess að ríkisstjórnin leggi til fé svo andstæðingar virkjana geti ráðið sér lögfræðing til að svara athugasemdum við skipulagið til mótvægis við svör Landsvirkjunar. Aðalskipulag Skeiða- og Gnúpverjarhrepps ekkert annað en lögfræðiálit Landsvirkjunar um framkvæmdir sem Alþingi hefur ekki samþykkt, að mati Sólar á Suðurlandi. - Opið bréf Sólar á Suðurlandi í heild sinni: Mismunun og opinber valdbeiting við Þjórsá. Opið bréf til Árna Mathiessen fjármálaráðherra, Össurar Skarphéðinssonar, iðnaðarráðherra, Þórunnar Sveinbjarnardóttur, umhverfisráðherra, Einars K. Guðfinnssonar, landbúnaðarráðherra og Kristjáns Möller, ráðherra sveitarstjórnarmála. Samþykkt aðalskipulag Skeiða-og Gnúpverjarhrepps er nú til skoðunar hjá Skipulagsstofnun. Í ljós hefur komið að skipulagsvinnan var ekki unnin í héraði eins og almennt gerist. Aðalskipulag sem gerir ráð fyrir þremur virkjunum í neðri hluta Þjórsár er unnið að ósk og á kostnað Landsvirkjunar. Enn verra var að athugasemdir sem almenningur gerði við skipulagið voru sendar til lögfræðings á vegum Landsvirkjunar, sem fyrirtækið greiddi fyrir að svara athugasemdunum á þann veg sem því hentaði. Eins og maður sem grunaður er um ofbeldi dæmi sjálfur í eigin sök og komist að þeirri niðurstöðu að stúlkan sem hann beitti valdi hefði sjálf beðið um það - og niðurstaðan stendur. Eins og maður sem byggir á lóð nágrannans, og borgar lögfræðingi fyrir að segja að lóðareigandanum komi málið ekki við. Þetta er ekki lýðræði og það er óeðlilegt að Landsvirkjun svari athugasemdum sem eru gagnrýni á skipulag vegna framkvæmda Landsvirkjunar sjálfrar. Ráðherrar lýðræðisríkisins sem Ísland á að vera hljóta að sjá það. Sjái þeir það ekki er í meira lagi tvísýnt um lýðræðið, eignaréttinn, mannhelgina, að ekki sé talað um Þjórsá og náttúruna eins og oft hefur verið bent á. Það hlýtur að vera réttlætismál að hlutlausir aðilar fjalli um aðalskipulag sem hundruð manna hafa gert athugasemdir við. Eðlileg krafa er að ríkisstjórnin tryggi að þeir sem telja sér ógnað af fyrirhuguðum framkvæmdum Landsvirkjunar í byggðum Suðurlands, fái sama tækifæri til að verja sig og Landsvirkjun hefur fengið til að verja áætlanir sínar. Við krefjumst þess að ríkisstjórnin leggi til fé svo andstæðingar virkjana geti ráðið sér lögfræðing til að svara athugasemdum við skipulagið til mótvægis við svör Landsvirkjunar. Ríkisstjórnin yrði svo sjálf að finna lendingu að fengnum báðum þessum lögfræðiálitum. En því miður er aðalskipulag Skeiða- og Gnúpverjarhrepps ekkert annað en lögfræðiálit Landsvirkjunar um framkvæmdir sem Alþingi hefur ekki samþykkt. Verjum Þjórsá Verjum lýðræðið Verjum náttúruna Verjum mannhelgi og eignarétt Sól á Suðurlandi/vinir Þjórsár
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira