Innlent

Brotist inn í Flóru og Kaffivagninn

Brotist var inn í Kaffi Flóru í Laugardalnum og Kaffivagninn á Grandagarði í nótt. Á báðum stöðum var rótað um í leit að verðmætum, en ekki er ljóst hvort einhverju var stolið.

Í báðum tilvikum komust innbrotsþjófarnir undan. Nokkuð hefur verið um innbrot að undanförnu eftir að heldur hafði dregið úr slíku frá því í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×