Innlent

Enginn niðurstaða hjá flugfreyjum á kjarafundi í gær

Engin lausn er í sjónmáli í kjaradeilu Icelandair og flugmanna hjá félaginu og skýrist væntanlega í næstu viku hvort þeir hefja undirbúning verkfallsaðgerða á ný. Flugfreyjur gæru beitt þeirri aðferð líka.

Síðasti samningafundur var stuttur og árangurslaus að sögn flugmanna en nýr fundur hefur verð boðaður í næstu viku. Flugmenn féllu fyrir nokkru frá áformum um að hefja undirbúning verkfallsaðgerða þegar félagið féllst á að semja aðeins til eins árs en það virðist ekki ætla að ganga heldur.

Ef fundurinn í næstu viku verður árangurslaus má vænta að flugmenn tilkynni á ný um verkfallsaðgerðir en þeir hafa verið með lausa samninga frá áramótum.

Það hafa flugfreyjur líka verið með frá áramótum. Fulltrúar þeirra og félagsins sátu á tveggja klukkustunda fundi hjá Ríkissáttasemjara í gær án þess að niðurstaða fengist og eru flugfreyjur farnar að hallast að því að árangur náist ekki nema með verkfallsaðgerðum eða hótunum um það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×