Samfylkingin þurfti að gefa eftir í umhverfismálum 27. júní 2008 12:28
Einn helsti hugmyndafræðingurinn á bak við umhverfisstefnu Samfylkingarinnar segir að flokkurinn hafi þurft að gefa eftir veigamikil atriði í umhverfismálum í ríkisstjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Hann vill þó ekki meina að Fagra Ísland séu orðin tóm. Samfylkingin gerði umhverfismál að einu helsta kosningamáli sínu fyrir alþingiskosningarnar í fyrra og var umhverfisstefnan Fagra Ísland óspart notuð í kosningabaráttunni. Eitt megininntak Fagra Íslands var að slá stóriðjuframkvæmdum á frest þar til nauðsynleg heildaryfirsýn yfir verðmæt náttúrusvæði Íslands liggur fyrir og verndun þeirra tryggð. Ári eftir að Samfylkingin tók sæti í ríkisstjórn eru framkvæmdir þegar hafnar við byggingu álvers í Helguvík þar sem Bjögvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra Samfylkingarinnar, tók fyrstu skóflustunguna. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra skrifaði í gær undir samning við Alcoa um frekari hagkvæmniathuganir vegna álvers á Bakka við Húsavík. Dofri Hermannsson, sem var einn af höfundum Fagra Íslands, var spurður út í það í Íslandi í dag í gær hvort umhverfisstefna Samfylkingarinnar væri marklaus. Dofri benti á að á meðan unnið væri að rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða vildi Samfylkingin fresta öllum stóriðjuframkvæmdum. Flokkurinn hafi hins vegar farið í samstarf við Sjálfstæðisflokkinn sem ekki vildi það. Dofri segir að flokkarnir tveir hafi gert málamiðlanir og það sem Samfylkingin hafi náð fram var að ekki væri farið í framkvæmdir á óröskuðum svæðum. Iðnaðarráðherra hafi hent út af borðinu umsóknum um rannsóknarleyfi í Brennisteinsfjöllum, Torfajökulssvæðinu og ótal öðrum svæðum til þess að uppfylla það. Þrátt fyrir það er Dofri óánægður með fyrirhugaðar framkvæmdir því samkvæmt Kyoto-bókuninni er einungis pláss fyrir eitt lítið álver. Hann telur tvö álver fráleit og segir að þau séu alltof orkufrek og hægt sé að nýta minni orku með miklu meira virðisaukandi hætti.
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Sjá meira