Veiðarnar þola ekki dagsljósið 20. júní 2008 15:50
Sigursteinn Másson fer fyrir hópi kvikmyndaliðs á vegum Alþjóða dýraverndunarsjóðsins - IFAW, sem ætlaði í dag að ná myndum af hrefnuveiðimönnum að störfum. Hrefnuveiðimenn eru hættir veiðum í dag og segja ekki koma til greina að veiða með myndatökulið í eftirdragi. Sigursteinn segir augljóst að veiðimennirnir álíti að veiðarnar þoli ekki dagsljósið. „Við höfum fylgt hrefnuveiðibátnum Nirði eftir með það í huga að mynda veiðarnar," segir Sigursteinn í samtali við Vísi. „Ég hefði nú haldið að hvalveiðar væru ekki neitt feimnismál en þeir virðast líta á það sem svo," segir hann. Hrefnuveiðimennirnir segja að kvikmyndaliðið hafi verið of nærri hrefnubátnum til þess að unnt sé að skjóta dýr. „Við höfum verið í sjónlínu við bátinn en aldrei í minna en hálfrar sjómílu fjarlægð, yfirleitt er það heil sjómíla," segir Sigursteinn. Sigursteinn segir að hrefnubáturinn hafi pakkað saman og stími nú rólega í land. „Það kemur í raun á óvart þar sem mikið er af hrefnu á svæðinu og veðrið með eindæmum gott. Við höfum reynt að ná samkomulagi við þá um að fá að mynda veiðarnar en þeir aftaka það með öllu. Það er greinilegt að það sem er í gangi hérna má ekki líta dagsins ljós." Alþjóða dýraverndunarsjóðurinn hefur að sögn Sigursteins að markmiði að byggja undir hvalaskoðun í stað hvalveiða. Sigursteinn hefur unnið fyrir sjóðinn í nokkur ár og var fenginn í ljósi fyrri reynslu sinnar af kvikmyndagerð til þess að hafa umsjón með myndatökunni.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira