Innlent

Fundu notaðar sprautunálar í Kókópuffs pakka

Unglingar fundu nokkrar notaðar sprautur og nálar í kókópuffs pakka, á milli eins grunnskólans og leikskólans á Selfossi í gærkvöldi. Þeir hirtu dótið upp en köstuðu því frá sér í runna við félagsmiðstöðina, í stað þess að láta lögreguna vita.

Það var ekki fyrr en einn unglingurinn sagði móður sinni frá þessu að lögregla fékk vitneskju um hvers kyns væri. Hún fjarlægði sprauturnar og nálarnar sem hafði verið komið fyrir í tómum pakkanum, og voru blóðugar eftir notkun. Talið er fullvíst að fíkniefnaneytendur hafi notað sprauturnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×