Innlent

Fær Samfylkingin Bónus undir sig?

Bónus hefur sótt um leyfi til að opna matvöruverslun í gamla Iðnaðarmannahúsinu við Hallveigarstíg 1. Umsókn þessa efnis var tekin fyrir á fundi skipulagsráðs í vikunni en ákvörðun um málið frestað.

Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, að hugmyndir séu uppi um að verslunin verði á allri fyrstu hæð hússins en þar er engin starfsemi um þessar mundir. Aðspurður um bílastæðamál segir Guðmundur að ágætis bílastæði séu við húsið og þá stóli forsvarsmenn Bónuss á umferð gangandi vegfarenda í miðborginni. „Á tímum hækkandi eldsneytisverðs mun fólk ganga meira þannig að við bindum miklar vonir við þessa staðsetningu," segir Guðmundur.

Aðspurður segir hann ekki standa til að loka verslun Bónuss á Laugavegi heldur verði hin nýja verslun hrein viðbót. Hann segir enn fremur að Bónusmenn hafi fengið jákvæð viðbrögð frá nágrönnum um verslunina, en þess má geta að skrifstofur Samfylkingarinnar eru á annarri hæð hússins við Hallveigarstíg 1.

Guðmundur segir spurður að vonir standi til að hægt verði að opna verslunina á næstu mánuðum en tekur skýrt fram að ekkert sé í hendi varðandi leyfi fyrir búðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×