Vinstri - græn telja stokk að Ánanaustum óráð 7. ágúst 2008 14:19 Þorleifur Gunnlaugsson.
Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi Vinstri grænna á fundi borgarráðs í dag, lagði fram bókun þar sem fram kemur að flokkurinn telji það óráð að leggja stokk fyrir bílaumferð frá gamla útvarpshúsinu að Ánanaustum. Í bókuninni segir að lagning Geirsgötu og Mýrargötu í stokk sé afar dýr leið og kosti Reykvíkinga á annan tug milljarða, fjármuni sem vel væri hægt að nýta með öðrum hætti nú þegar kreppir að í þjóðfélaginu og staða borgarsjóðs jafnt og reykvískra heimila hríðversni. „Það er tímanna tákn að á sama fundi og meirihlutinn leggur til þessa rándýra leið er lögð fram tillaga um það að skera niður þjónustu Strætó bs. Þjónustu sem þvert á móti þarf að stórauka til að gera borgina lífvænlegri og samgöngur ódýrari," segir í bókuninni. Vinstri - græn segja enn fremur að það sé liðin tíð að einkabíllinn eigi rétt á því að fara alls staðar óhindrað um, hratt og ávallt á kostnað annarra ferðamáta. Jafnframt lagði Þorleifur fram fyrirspurn um það hvernig meirihlutinn hygðist fjármagna stokkinn og hver yrði kostnaðarþátttaka ríkis og einkaaðila. Enn fremur benti hann á framkvæmdir við Tónlistar- og ráðstefnuhús væru komnar vel á veg. „Gera má ráð fyrir því að ýmsar framkvæmdir tengdar núverandi umferðalausn séu í gangi eða þeim lokið. Verði af fyrirhugaðri lagningu stokks frá Geirsgötu í Ánanaust má búast við því að hluti þeirra framkvæmda hafi verið óþarfar. Sé það raunin, hversu mikið fé hefur þá farið í súginn ?" spyrja Vinstri - græn. Jafnframt lagði flokkurinn fram tillögu um að metnir yrðu allir kostir umferðalausna frá Geirsgötu í Ánanaust með tilheyrandi skipulags- og umhverfismatsvinnu. Þar er meðal annars átt við lausnir eins og stokka, göng og brýr frá Geirsgötu út í Ánanaust eða Granda.
Tengdar fréttir ,,Málið er ekki í upplausn" Júlíus Vífill Ingvarsson formaður stjórnar Faxaflóahafna segir að bókun Faxaflóahafna um Geirsgötustokk hafi verið gerð í ,,góðu samkomulagi" við Gísla Martein Baldursson formann umhverfis- og samgönguráðs. ,,Ég hef vissulega rætt þetta við hann og lét hann vita fyrir fram af þessari hugsanlegu bókun Faxaflóahafna." 11. júní 2008 16:35 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira
,,Málið er ekki í upplausn" Júlíus Vífill Ingvarsson formaður stjórnar Faxaflóahafna segir að bókun Faxaflóahafna um Geirsgötustokk hafi verið gerð í ,,góðu samkomulagi" við Gísla Martein Baldursson formann umhverfis- og samgönguráðs. ,,Ég hef vissulega rætt þetta við hann og lét hann vita fyrir fram af þessari hugsanlegu bókun Faxaflóahafna." 11. júní 2008 16:35