Ólafur Ragnar heimsótti Peres og Abbas 4. september 2008 10:36 Mahmoud Abbas tekur á móti forseta Íslands í höfuðstöðvum Palestínustjórnarinnar í Ramallah 3. september 2008 að viðstöddum heiðursverði.
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson átti í gær fundi með Shimon Peres forseta Ísraels og Mahmoud Abbas forseta Palestínustjórnarinnar. Á fundunum var fjallað um friðarhorfur í Mið-Austurlöndum, samningaviðræður undanfarna mánuði og hvernig sagan sýnir að smá ríki geti stuðlað að sáttargjörð og friðarsamningum, að því er segir í tilkynningu frá forsetaembættinu. Fundurinn með Shimon Peres var í gærmorgun í forsetahöllinni í Jerúsalem en síðdegis fór forseti Íslands til Ramallah, höfuðborgar Palestínusvæðanna, og hitti Mahmoud Abbas í höfuðstöðvum heimastjórnarinnar. Það er í fyrsta sinn sem forseti Íslands kemur til heimastjórnarsvæða Palestínumanna.Forsetahjónin ræða við Shimon Peres í skrifstofu hans í Jerúsalem.„Á fundi forseta Íslands og Shimon Peres forseta Ísraels var fyrst fjallað um árangur Íslands í viðskiptum á alþjóðavettvangi og horfurnar í efnahagsmálum þjóðarinnar, aukið samstarf Íslendinga við ríki í Mið-Austurlöndum, heimsóknir forseta Íslands til Abu Dhabi og Katars fyrr á þessu ári og framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna," segir í tilkynningunni og því bætt við að Shimon Peres hafi rætt ítarlega um friðarhorfur í Mið-Austurlöndum og lýst helstu átakaþáttum sem einkennt hafa deilur Ísraels og Arabaríkja á umliðnum áratugum. „Fáir leiðtogar í Mið-Austurlöndum hafa jafnlanga reynslu og Shimon Peres af glímunni við ófrið og átök og tilraunum til að ná varanlegum friði, enda hlaut hann friðarverðlaun Nóbels árið 1994," segir í tilkynningunni. „Á fundinum með forseta Íslands lýsti Peres því ítarlega að nú hefði hann komist að þeirri niðurstöðu að aukin viðskipti, umsvif fyrirtækja, fjárfestingar, menntun og nútímaleg atvinnutækifæri æskufólks myndu skila meiri árangri en viðræður ríkisstjórna."Frú Dorrit Moussaieff ásamt Mahmoud Abbas Palestínuforseta. Dorrit er íklædd vesti og sjali sem Abbasgaf henni að loknum fundi hans og forseta Íslands. Vestið og sjalið er handgert af palestínskum konum og geymir fjölmörg tákn um frið og farsæla sambúð.Síðar um daginn heimsótti forsetinn Mahmoud Abbas forseta heimastjórnar Palestínumanna í höfuðstöðvar heimastjórnarinnar í Ramallah á Vesturbakkanum. „Á fundi þeirra lýsti Abbas mikilli ánægju með heimsókn sína til Íslands í vor og fagnaði aukinni samvinnu Íslendinga við Palestínumenn. Hann bauð forseta Íslands að koma innan tíðar í nokkurra daga heimsókn til heimastjórnarsvæða Palestínumanna til að kynna sér aðstæður, viðhorf íbúanna og sögufræga staði kristninnar." „Abbas fjallaði síðan ítarlega um friðarviðræðurnar sem fram hafa farið undanfarna mánuði. Enda þótt stjórnmálaástandið í Ísrael og kjör á nýjum forsætisráðherra þar kynni að tefja gang mála taldi Abbas að verulegur árangur hefði nú þegar náðst í mörgum málaflokkum." Að mati Abbas hafi skapast grundvöllur sem hægt væri að byggja á og gæti leitt til formlegra friðarsamninga. Því væri mikilvægt að nota næstu mánuði vel og hvorki kosning á nýjum forsætisráðherra í Ísrael né nýjum forseta Bandaríkjanna mætti koma í veg fyrir að tækifærin sem nú hefðu skapast yrðu nýtt til fullnustu. „Einnig ræddu forseti Íslands og Abbas um framlag smárra þjóða til friðarviðræðna og jákvæðrar þróunar í alþjóðamálum. Samningarnir í Ósló á sínum tíma, nýlegir samningar sem gerðir voru í Katar um frið í Líbanon og fundur Reagans og Gorbasjovs í Reykjavík væru allt lærdómsrík söguleg dæmi. Palestínumenn hefðu mikinn áhuga á að nýta sér framlag smárra þjóða sem vildu stuðla að friði." Fund forseta Íslands og Mahmoud Abbas sat einnig Þórður Ægir Óskarsson sendiherra, sérlegur fulltrúi Íslands gagnvart heimastjórn Palestínu.
Mest lesið Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Innlent Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Innlent Ítrekað hjólað á móti umferð Innlent Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Innlent Gleymdi að hann hefði staðið fyrir innleiðingu Evrópulaga Innlent Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Erlent Fleiri fréttir Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Sjá meira