Dagur: Mogginn notar Ólaf F. sem skjöld í umræðunni 27. janúar 2008 18:16
Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgastjóri, sagði í Silfri Egils á Rúv í dag Morgunblaðið hafi kosið að nota Ólaf F. Magnússon sem skjöld í umræðunni um borgarmálin síðustu daga. Hann sagði að blaðið treysti sér ekki til þess að ræða kjarna málsins sem væri sá að með því að mynda meirihluta með Ólafi hafi Sjálfstæðisflokkurinn vikið öllum sínum hugsjónum frá og sett borgarstjórastólinn á uppboð. Hann sagði einnig að það hafi orðið að samkomulagi á milli Ólafs og skrifstofustjóra hjá borginni að hann skilaði inn læknisvottorði á sínum tíma. Dagur benti á að flokkurinn væri í frjálsu falli í skoðannakönnunum, Morgunblaðið væri komið í nauðvörn og því sé tekið upp á því að „sulla aur" eins og hann orðaði það. „Samband okkar Ólafs hefur verið býsna náið og við höfum verið í daglegum samskiptum undanfarna mánuði og engan skugga borið á það. Þessvegna tek ég skrif moggans nærri mér," sagði Dagur. „Mogginn velur að gera Ólaf að vígvelli í pólitískum átökum á milli Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar," sagði Dagur og bætti við að sér fyndist að blaðið væri „löngu hætt að vera vant að virðingu sinni," og að hann tæki ekki þátt í slíku. Egill spurði Dag út í læknisvottorð sem Ólafur lagði fyrir borgarstjórn þegar hann snéri aftur til starfa. Dagur taldi þar um miskilning að ræða. Ólafur hefði reglulega skilað inn vottorði á meðan á veikindaleyfi hans stóð eins og lög gerðu ráð fyrir. Það hafi svo orðið að einhverskonar samkomulagi á milli Ólafs og Gunnars Eydal, skrifstofustjóra hjá skrifstofu borgarstjórnar að hann legði einnig fram vottorð þegar hann snéri til baka úr leyfinu. „Ég hefði aldrei farið fram á að hann skilaði vottorði á þeim tíma."
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira