Störf mannsins hjá ráðuneytinu auðvelduðu honum ekki smyglið 27. janúar 2008 11:30 Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu.
Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu staðfestir við Vísi að starfsmaður ráðuneytisins sé bendlaður við smygl á tæpum fimm kílóum á amfetamíni og 600 grömmum af kókaíni. Tollgæslan lagði hald á efnin sem komu með hraðsendingu og er málið litið alvarlegum augum þar sem Tollgæslan heyrir undir fjármálaráðuneytið. Störf mannsins í ráðuneytinu tengdust þó tollgæslunni ekki á nokkurn hátt. „Það liggur fyrir að starfsmaður ráðuneytisins blandast inn í málið," segir Baldur Guðlaugsson. „Í sjálfu sér vitum við ekki mikið um málavöxtu en starfsmaðurinn fæst ekki við nein þau mál innan ráðuneytisins sem gætu auðveldað honum brot af þessu tagi," segir Baldur. Hann segir því ólíklegt að farið verði yfir verkferla og öryggismál innan ráðuneytisins vegna málsins en engar ákvarðanir hafi verið teknar um málið. „Það er engin tenging á milli þess sem maðurinn er að fást við og þess sem hann er grunaður um. Hann var því ekki að nýta sér stöðu sína innan ráðuneytisins á nokkurn hátt," segir Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins í samtali við Vísi.
Mest lesið Ríkissjóður greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Innlent Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Innlent Maðurinn fundinn Innlent „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Innlent Ekið á konu á Langholtsvegi Innlent Fleiri Epstein-skjöl birt: Prinsinn bað um „óviðeigandi vinkonur“ Erlent Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér Erlent Undrandi á ráðningu ráðgjafa Innlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Fleiri fréttir Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sektaður um hundruð þúsunda fyrir að sparka í hund Stýra fjármálum og mannauðsmálum Þjóðleikhússins Sló mann í höfuðið með glerflösku á ísfirskum skemmtistað Ekið á konu á Langholtsvegi Ríkissjóður greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Undrandi á ráðningu ráðgjafa „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Ráðist á pilt á heimleið Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Vestmannaeyingar fá að eiga Vestmannaeyjar Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Höfðu samband við dönsku herstjórnina á Grænlandi Sjá meira