Innlent

Þorra blótað í vondu veðri á Suðurlandi

Erilsamt var í umdæmi Selfosslögreglu í nótt. Þrjú eða fjögur þorrablót voru haldin á svæðinu og við bættist leiðinda veður. Lögregla og björgunarsveitir höfðu því nóg að gera við að aðstoða fólk í vanda. Þorrablótin fóru að mestu vel fram að sögn lögreglu en vandræðin byrjuðu þegar fólk reyndi að komast til sín heima.

Kalla þurfti út björgunarsveitina í Hveragerði og á tímabili voru sex til sjö bílar fastir á Hellisheiðinni en þar var um að ræða Þorrablótsgesti úr Reykjavík á leið heim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×