Veðrið að ganga niður á höfuðborgarsvæðinu en bætir í vind annars staðar 8. febrúar 2008 22:23 Björgunarsveitamenn hafa haft í nógu að snúast í kvöld.
Um 200 manns hafa unnið í allt kvöld að því að sinna verkefnum á höfuðborgarsvæðinu vegna veðurhamsins sem gengið hefur yfir. Hjá samhæfingarmiðstöðinni í Skógarhlíð fengust þær upplýsingar að veðrið eigi að fara að ganga niður og að tilkynningum vegna foktjóns hafi fækkað nokkuð. Hins vegar hafi tilkynningum vegna vatnstjóns fjölgað á sama tíma. En um leið og veðrið gengur yfir höfuðborgasvæðið og Suðurnes versnar það á Vestfjörðum og spáð er ofsaveðri í Húnavatnssýslum í nótt. Þá er spáin slæm fyrir Austurland þegar líða tekur á nóttina. Á Norðurlandi og Vestfjörðum er er töluverður viðbúnaður að hálfu lögreglu og björgunarsveita að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Starfsmenn almannavarnadeildarinnar fylgjast grannt með ástandi um allt land og hvetja alla til að huga vel að eigum sínum. Áfram er viðbúnaðarstig vegna snjóflóðahættu á Vestfjörðum en ekki þótti ástæða til að rýma þar í kvöld. Áfram verður fylgst með ástandinu og nýjar upplýsingar koma með morgninum. Rafmagnstruflanir hafa orðið víða um landið. Vegna óveðursins er ljóst að millilanda- og innanlandssamgöngur hafa raskast. Almannavarnadeildin vill benda ferðamönnum á að afla sér upplýsinga um færð á vegum á síðu Vegagerðarinnar, og um millilandaflugið á www.textavarp.is á bls. 420 og 421. Einnig er upplýsingar að finna á www.airport.is. Upplýsingar um innanlandsflug má finna á www.flugfelag.is .
Mest lesið Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Erlent Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Innlent Moskítóflugur muni koma til Íslands Innlent Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Innlent Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Erlent Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Innlent Misstu aðra herþotu í sjóinn Erlent Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Innlent Bein útsending: Páfakjör í Páfagarði Erlent Mögulegt að hitinn fari í tuttugu stig í fyrsta sinn í ár Veður Fleiri fréttir Rekstur Reykjanesbæjar fram úr vonum vegna hærri útsvarstekna Veiðigjöldin enn rædd en þó ekki á dagskrá í dag Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Stútur á 106 þar sem hámarkshraði var sextíu Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Boða sprengingar við Hvammsvirkjun í allt sumar Moskítóflugur muni koma til Íslands Áberandi ráðamenn „keppist við að hnykla vöðva sína, beita hótunum og þvingunum“ Ekki inni í myndinni að fyrirkomulag hvalveiða haldist óbreytt Fékk rætin skilaboð vegna veðmála eftir að hafa klikkað á vítum Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Álfurinn í landsliðsbúningi í ár Líflátshótanir í kjölfar veðmála og óttaslegin eftir útburð Þrír fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys við Smáralind Ekki talin yfirvofandi hætta en maðurinn geti orðið hættulegur Núverandi fyrirkomulag „virðist hylma yfir ábyrgð og gagnsæi“ Ítarleg skýrsla á borði ráðherra Inga skipar konu í stað karls í stjórn HMS Óboðlegt að vera „friðardúfur“ í kosningabaráttu og horfa síðan þögul á „hryllingsmynd í beinni“ Líkur á nýju gosi munu aukast þegar líða fer á haustið „Því miður er þetta þrautalending“ Reikningum Flokks fólksins lokað um stund „Hún gat ekki gefið neinar skýringar á þessu, hvorki mér né lögreglunni“ Konan í Bríetartúni komin á götuna Hækkandi matarverð hringir bjöllum hjá ráðherra Viðvörunarbjöllur óma vegna verðhækkana Lítur það grafalvarlegum augum ef ráðherra fari ekki að lögum Treystir Ingu til að leggja mat á hæfi stjórnarmanna og að lögum sé fylgt Konungshjónin tóku á móti Höllu og Birni Sjá meira