Innlent

Adolf nýr formaður LÍÚ

Adolf Guðmundsson.
Adolf Guðmundsson.

Adolf Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gullbergs ehf. á Seyðisfirði, var kjörinn formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna á aðalfundi samtakanna sem lauk í dag.

Adolf tekur við formennsku af Björgólfi Jóhannssyni sem verið hefur formaður LÍÚ síðastliðin fimm ár. Fram kemur í tilkynningu LÍÚ að Adolf hafi unnið hjá Gullbergi nánast frá því að hann lauk lögfræðiprófi ári 1982.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×