Meirihluti hlynntur því að taka upp evru 15. september 2008 14:07 MYND/AP
Rúmlega 55 prósent aðspurðra eru hlynnt því að taka upp evru hér á landi í stað krónunnar samkvæmt nýrri könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Samtök iðnaðarins. Þrjátíu prósent aðspurðra eru á móti en 14 prósent eru óákveðin. Þegar horft er eitt ár aftur í tímann kemur í ljós að fylgjendum evrunnar hefur fjölgað eilítið en þeir voru tæp 53 prósent í ágúst í fyrra. Að sama skapi hefur þeim fækkað sem eru andvígir því að taka upp evru. Þegar afstaða er skoðuð eftir kynjum kemur í ljós að karlar eru hlynntari upptöku gjaldmiðilsins en konur. Tæp 63 prósent karla vilja evruna í stað krónunnar en 48 prósent kvenna eru á sömu skoðun. Í tilkynningu Samtaka iðnaðarins er einnig vakin athygli á því að fylgni sé á milli menntunar og afstöðu til evru. Þannig eru færri grunnskólaprófsmenntaðra fylgjandi upptöku evru, eða 49 prósent á móti 59 prósentum háskólamenntaðra. Meirihluti þeirra sem eru með yfir 800 þúsund krónur í laun á mánuði eru fylgjandi evru, eða 63 prósent og 24 prósent eru á móti. Þá er helmingur þeirra sem hafa undir 250 þúsund krónum í mánaðarlaun fylgjandi gjaldmiðlinum en 40 prósent á móti. Meiri stuðningur við evru á höfðuborgarsvæði en landsbyggð „Séu niðurstöður skoðaðar eftir búsetu eru íbúar höfuðborgarsvæðisins jákvæðari gagnvart evru en íbúar landsbyggðarinnar. Um 61% höfuðborgarbúa er fylgjandi til móts við rúm 48% íbúa landsbyggðarinnar. Ekki er afgerandi munur eftir aldri fólks. Flesta fylgjendur evru er þó að finna í aldursflokknum 45-54 ára eða 60%," segir einnig í tilkynningu Samtaka iðnaðarins. Þegar horft er til stuðningsmanna stjórnmálaflokkanna kemur í ljós að 78 prósent stuðningsmanna Samfylkingarinnar eru hlynntir því að taka upp evru en 13 prósent andvíg. Helmingur stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins vill evru en þriðjungur ekki. Þeir eru fleiri í öllum flokkum sem eru hlynntir upptöku evru en þeir sem eru andvígir. 49 prósent kjósenda Vinstri - grænna vilja evrópumyntina og 45 prósent framsóknarmanna en frjálslyndra er ekki getið.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira