Innlent

Útgefnum bókum hefur fækkað frá aldamótum

MYND/Stefán
Ríflega 1400 bókatitlar komu út á árinu 2006 samkvæmt yfirliti Hagstofunnar um bókaútgáfu áranna 1999-2006. Þetta jafngildir 4,6 bókum á hverja þúsund íbúa landsins. Tölur Hagstofunnar sýna einnig að útgefnum bókum hefur fækkað nokkuð, eða um 275 frá því að flestar bækur komu út árið 2000. Það ár voru sex bækur gefnar út á hverja þúsund íbúa.

Þegar nánar er rýnt í tölurnar kemur í ljós að af hverjum hundrað útgefnum titlum voru um 15 þeirra fyrir börn og unglinga, fimm kennslu- og námsbækur og 80 um annað efni. Hlutur bóka fyrir börn og ungmenni hefur aukist nær samfellt frá 1999 eða úr tæpum tíu af hundraði upp í tæp 15 af hundraði árið 2006.

Langflestar þeirra bóka sem gefnar eru út ár hvert eru íslensk höfundarverk, rituð á íslensku, eða fast að því þrjár af hverjum fjórum útgáfum. Hlutur þýðinga hefur þó aukist jafnt og þétt á árabilinu. Hlutur þýðinga nam 22 af hundraði árið 1999 samanborið við 27 af hundraði árið 2006.

Þýðingar úr ensku eru langsamlega flestar. Sjö af hverjum tíu þýddum bókum sem út voru gefnar árið 2006 voru þýðingar á bókum úr ensku. Sömu tilhneigingar gætir varðandi uppruna bókmenntaþýðinga. Hlutfall þýðinga úr ensku jókst úr 68 prósentum upp í 74 prósent á árabilinu 1999-2006.

Hagstofan tók tölurnar saman í tilefni af alþjóðlegum degi bókarinnar sem er 23. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×