Innlent

Sjónarmið mannúðar og réttlætis fá að njóta sín

Katrín Theódórsdóttir.
Katrín Theódórsdóttir.

Katrín Theódórsdóttir, lögmaður Paul Ramses, segir fulla ástæðu til að þakka dómsmálaráðherra og öðrum íslenskum stjórnvöldum fyrir að hafa tekið jákvæða ákvörðun í máli flóttamannsins Ramsesar. Hún segir að í meginatriðum sé niðurstaða dómsmálaráðherra í samræmi við óskir sínar þannig að beiðni hans um hæli verður tekin fyrir að nýju.

„Þótt deila megi um lagatæknilegar útlistanir ráðuneytisins hlýtur megin niðurstaðan að skipta mestu máli; hér hafa sjónarmið mannúðar og réttlætis fengið að njóta sín, þannig að hægt er að líta á niðurstöðu málsins sem mikilvægan ávinning í mannréttindabaráttu á Íslandi," segir Katrín.

„Með væntanlegri endurupptöku málsins má ætla að öryggi einstaklings sem sá fram á örvæntingu og ofsóknir í fjarlægu landi verði tryggt um leið og ung fjölskylda verður sameinuð á ný; eiginkona Ramsesar og ungt barn þeirra hjóna sem fæddist hér á landi hafa beðið föðurins um nokkurra vikna skeið. Um leið og þessu jákvæða skrefi er fagnað er full ástæða til að óska eftir því að framhald málsins verði af opinberu hálfu sömuleiðis í farvegi mannúðarsjónarmiða og félagslegs réttlætis," segir hún að lokum um leið og hún þakkar þeim „fjölmörgu sem lagt hafa þessu nauðsynjarmáli lið."








Tengdar fréttir

Mál Ramses skoðað á ný

Umsókn Pauls Ramses Odour um hæli hér á landi verður tekin til umfjöllunar samkvæmt úrskurði dóms- og kirkjumálaráðuneytisins. Ramses var vísað úr landi í júlí síðastliðnum. Þá kærði hann þá ákvörðun Útlendingastofnunar að hafna því að taka til meðferðar beiðni hans um hæli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×