Bankastjóri orðaður við Landsvirkjunarstól 5. september 2008 18:51
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, vill ekki tjá sig um sögusagnir þess efnis að hann hyggist sækja um starf forstjóra Landsvirkjunar.Tvö stærstu orkufyrirtæki landsins, Orkuveita Reykjavíkur og Landsvirkjun, fá nýjan forstjóra á næstu vikum. Umsóknarfrestur er runnin út um starfið hjá Orkuveitunni en farið er með umsóknir sem trúnaðarmál, eins og hjá Landsvirkjun. Starfandi forstjóri Orkuveitunnar, Hjörleifur Kvaran, hafði þó lýst því yfir að hann hygðist sækja um. Um aðra umsækjendur er ekki vitað en stefnt er að því að ganga frá ráðningunni á stjórnarfundi Orkuveitunnar þann 19. september. Hjá Landsvirkjun rennur umsóknarfrestur út þann 12. september. Víst má telja að ákvörðun verði borin undir forystumenn ríkisstjórnarinnar en fjármálaráðherra fer með eigendavaldið yfir Landsvirkjun fyrir hönd ríkisins. Margir eru nefndir sem líklegir umsækjendur. Úr stjórnendahópi Landsvirkjunar þykja forstjórar tveggja dótturfyrirtækja líklegir, þeir Bjarni Bjarnason, hjá Landsvirkjun Power og Stefán Pétursson, hjá Hydrocraft Invest. Stjórnarformaður Landsvirkjunar, Ingimundur Sigurpálsson, er orðaður við starfið, en hann sagði Stöð 2 í dag að ekki hafi hvarflað að sér að sækja um. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa, er nefndur en hann segist ekki ætla að sækja um, kveðst afar sæll í því sem hann er að gera. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, er nefndur. „Nei ekki núna," svarar hann, kannski eftir tíu ár. Raddir heyrast um að kominn sé tími til að kona stýri Landsvirkjun. Ásdís Halla Bragadóttir er nefnd en hún kveðst ekki hafa íhugað að sækja um. Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, er orðaður við starfið en hann fór áður með orkumál í iðnaðarráðuneytinu. Þegar Stöð 2 spurði Halldór í dag hvort hann myndi sækja um forstjórastarfið í Landsvirkjun var svarið: „Ég tjái mig ekkert um slíkar sögusagnir."
Mest lesið Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Erlent Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Erlent Fleiri fréttir Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Sjá meira