Innlent

Ný lög um almannavarnir taka gildi

MYND/Pjetur

Ný lög um almannavarnir sem samþykkt voru á síðasta starfsdegi Alþingis í vor taka gildi í dag.

Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu fela lögin í sér ýmsar breytingar og er þeim ætlað að tryggja enn frekar en áður virkar forvarnir gegn vá og rétt viðbrögð allra aðila á hættustundu. Komið hefur verið á fót almannavarna- og öryggismálaráði undir formennsku forsætisráðherra sem hefur það hlutverk að marka stefnu stjórnvalda í almannavarna- og öryggismálum.

Umsýsla ráðsins og undirbúningur funda þess verður í höndum dómsmálaráðherra. Þá hefur Ríkislögreglustjóri eftirlit með almannavörnum á landinu öllu og umsjón með því að ráðstafanir séu gerðar í samræmi við stefnu stjórnvalda í almannavarna- og öryggismálum. Þá skulu ríki og sveitarfélög gera viðbragðsáætlanir í samræmi við hættumat hvert á sínu sviði og í sínu umdæmi.

„Við embætti ríkislögreglustjóra starfar samhæfingar- og stjórnstöð undir sérstakri stjórn. Í stöðinni fer fram samhæfing og yfirstjórn almannavarnaaðgerða með hliðsjón af almannavarnastigi og viðeigandi viðbragðsáætlun. Auk þess er ríkislögreglustjóra heimilt að stofna tímabundið þjónustumiðstöð vegna tiltekinnar hættu eða hættuástands eins og gert var í fyrsta sinn í kjölfar jarðskjálftanna á Suðurlandi 29. maí sl.," segir í tilkynningu dómsmálaráðuneytið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×