Innlent

Ránið breytti lífi mínu

SB skrifar
Óskar Örn Gíslason sem ákærður er fyrir að sviðsetja rán. Hefur breytt lífi sínu og er hamingjusamur.
Óskar Örn Gíslason sem ákærður er fyrir að sviðsetja rán. Hefur breytt lífi sínu og er hamingjusamur.
„Þetta var byrjunin á því besta sem komið hefur fyrir mig,“ segir Óskar Örn Gíslason, einn þremenninga sem sviðsettu rán í 11-11 í Garðabæ fyrir rúmu ári. Málið var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjaness í morgun.

Atburðarrásin í búðinni var líkust reyfarakenndri kvikmynd. Óskar kom inn klæddur kuldagalla og lambúshettu. Hann barði félaga sinn sem vann á kassa í golfið og náði 65 þúsund krónum úr kassanum. Ránsfengurinn var falinn heima hjá þriðja aðilanum sem ákærður er í málinu.

„Úff, maður var í annarlegu ástandi þegar þetta gerðist. Eftir skýrslutökurnar fór ég strax í meðferð. Þetta var endapunkturinn á löngu ferli," segir Óskar sem er 21 árs og lítur nú um öxl og hefur öðlast nýtt sjónarhorn á lífið. Hann veit að gamlar syndir elta mann uppi en ekki sé hægt að takast á við ölduganginn nema með blöndu af auðmýkt og húmor.

„Fólk gerir mistök, krakkar gera mistök. Maður var bara krakki og svo þegar harðnar í ári og maður á enga peninga þá virðast hinar heimskulegustu hugmyndir líta vel út," segir Óskar og bætir við: „Maður hefur þroskast mikið við þetta. Það er tími til kominn að horfast í augu við fortíðina."

Óskar hefur fetað beinu brautina allt frá því að ránið afdrifaríka setti líf hans á hvolf. Hann segir þennan tíma hafa verið ævintýri líkastan:

„Eftir meðferðina fór boltinn bara að rúlla - ég eignast frábæra kærustu og hún verður ólétt og nú á maður fjölskyldu, bíl og hús. Ég hef eiginlega aldrei verið hamingjusamari. Ef það væri ekki fyrir helvítis verðbólguna þá væri lífið fullkomið!"

Félagar Óskars hafa samkvæmt honum einnig breytt lífi sínu til batnaðar. Hvorugur þeirra naut aðstoðar lögmanns í málinu. Þeir segjast ekki þurfa að verja sig - bara að segja sannleikann.

„Ég trúi því að dómurinn meti mér til tekna hvernig ég hef tekið á mínu lífi," segir Óskar. „Ég þarf engan lögfræðing til að segja þeim það. Ég ber ábyrgð á mínu lífi."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×