Innlent

Norðmenn vilja hjálpa Íslendingum

Norðmenn hafa skilning á aðstæðum Íslendinga og vilja aðstoða Íslendinga fjárhagslega. Þetta kom fram á fundi Steingríms J. Sigfússonar, formanni Vinstri grænna með Kristinu Halvorsen, fjármálaráðherra Noregs, og nánum ráðgjafa hennar. Á fundinum var rædd var sú hugmynd að Norðurlöndin taki virkan þátt í fjárhagsaðstoð með Alþjóðagjaldeyrissjóðum.

Formaður Vinstri grænna er á ferð um Norðurlöndin, en hann verður viðstaddur Norðurlandaráðsþing í Helsinki á þriðjudag. Hann mun funda með Íslendingum í Jónshúsi í Kaupmannahöfn í kvöld og hefur þegar haldið fundi með Íslendingum í Oslo, þar sem rætt var um stöðu efnahagsmála. Á þriðjudag mun Steingrímur taka þátt í umræðum forystumanna í norrænum stjórnmálum á Norðurlandaráðsþinginu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×