Innlent

Umferðartafir á Hafnarfjarðarvegi

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Myndin tengist ekki þessari frétt.
Myndin tengist ekki þessari frétt.

Vegna framkvæmda á Hafnarfjarðarvegi má gera ráð fyrir umferðartöfum frá Kópavogslæk í Fossvogi frá klukkan 9 og fram eftir degi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Vegna vinnu við mislæg gatnamót Reykjanesbrautar og Vogavegar þarf að flytja umferð við gatnamót Reykjanesbrautar og Vogavegar á bráðabirgðaveg. Bráðabirgðagatnamótin eru um 150 m austan við núverandi gatnamót.

Einnig mega vegfarendur um Vogaveg búast við truflunum á umferð vegna tengingar nýrra gatnamóta við Vogaveg. Búast má við að þessi bráðabirgðagatnamót verði í notkun til morguns. Vegfarendur eru beðnir um að sýna þolinmæði og virða hámarkshraða á svæðinu.

Vegna vegaframkvæmda á Heiðmerkurvegi verða miklar umferðartafir frá Rauðhólum að Vífilstaðahlíð næstu daga. Vegna aurbleytu og hættu á vegaskemmdum er allur akstur bannaður á sumum hálendisvegum og nokkrum leiðum sem að jafnaði eru ekki færar nema að sumarlagi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×