Innlent

Sjö ungmenni stálu olíu í Eyjum

Mynd/Vísir

Lögreglan í Vestmannaeyjum upplýsti í gær þrjú þjófnaðarmál sem tilkynnt hafa verið til lögreglu á undanförnum þremur mánuðum.

Eftir því sem segir í tilkynningu hennar var um að ræða þjófnað á skjávarpa og effect-ljósi sem Leikfélag Vestmannaeyja var með í láni frá Vestmannaeyjabæ. Þá var olíu stolið úr tanki sem er í Viðlagafjöru fyrr í þessum mánuði.

Lögreglan fékk upplýsingar um aðila sem hugsanlega átti þátt í þessum þjófnuðum og við húsleit á heimili hans fundust þeir munir sem stolið var auk olíunnar. Við yfirheyrslur kom í ljós að hann var einn að verki varðandi þjófnaðinn á skjávarpanum og ljósinu en alls komu sjö ungmenni að þjófnaðinum á olíunni. Málin teljast að mestu upplýst að sögn lögreglu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×