Sjálfsagt að endurskoða sönnunarmat héraðsdóms 14. maí 2008 10:38 Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari. MYND/E.Ól
Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari í Baugsmáli, sagði við upphaf málflutnings í Hæstarétti í morgun að Hæstarétti væri sjálfsagt að endurskoða sönnunarmat héraðsdóms í málinu. Þá vísaði hann til laga um meðferð opinberra mála sem kvæði um að Hæstiréttur gæti kallað til ákærðu eða vitni, en slíkt er ekki algengt í Hæstarétti. Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag fjallar Hæstiréttur nú um endurákæru í Baugsmálinu sem settur saksóknari, Sigurður Tómas Magnússon, gaf út eftir að upprunalega Baugsmálinu var öllu vísað frá dómstólum. Alls er um að ræða 18 ákæruliði. Í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrra var Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, sýknaður af langflestum ákæruliðum en þó dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir aðild að útgáfu tilhæfulauss reiknings upp á 62 milljónir króna sem færður var í bækur Baugs. Þá var Tryggvi Jónsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri, dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir bókhaldsbrot og fjárdrátt með því að láta Baug greiða persónulegan kostnað sinn. Enn fremur var Jón Gerald Sullenberger, fyrrverandi viðskiptafélagi Baugsmanna, dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að aðstoða Jón Ásgeir og Tryggva við að gefa út hinn tilhæfulausa reikning. Greinargerð saksóknara í ellefu möppum Settur saksóknari hóf mál sitt á því að lýsa því yfir að hann krefðist sakfellingar samkvæmt ákæru og að ákærðu, þeir Jón Ásgeir Jóhannesson, Tryggvi Jónsson og Jón Gerald Sullenberger yrðu dæmdir til að greiða sakarkostnað á báðum dómsstigum. Þá sagðist Sigurður Tómas í ræðu sinni mundu vísa í ítarlega greinargerð sem unnið hefði verið fyrir Hæstarétt en hún telur ellefu stórar möppur. Sigurður Tómas benti á í ræðu sinni að Baugur Group væri allt annað félag en Baugur var þegar meint brot hefðu verið framin, en þá var Baugur almenningshlutafélag. Fjölmörg skjalleg gögn sýndu fram á sekt ákærðu og ákæruvaldið teldi sjálfsagt að Hæstiréttur endurskoðaði sönnunarmat héraðsdóms. Þá biðlaði hann til Hæstaréttar og benti á að samkvæmt lögum um meðferð opinberra mála gæti Hæstiréttur óskað eftir því að ákærðu eða vitni yrðu kölluð fyrir dóminn.Erfiðara að falsa tölvupóst en málverkMYND/GVAÁkæruatriðin snúa að meintum ólöglegum lánveitingum, bókhaldsbrotum og fjársvikum og sagði settur saksóknari að um fullframin bókhaldsbrot væri að ræða. Fjöldi tölvupósta milli ákærðu og annarra hefðu sönnunargildi.Vísaði Sigurður Tómas til þess að sérfróðir menn hefðu verið fengnir til þess að meta það hvort tölvupóstar væru falsaðir. „Samkvæmt matsmönnum er erfiðara að falsa tölvupóst en málverk," sagði Sigurður Tómas og sagði engar vísbendingar um falsanir í tölvupóstum tengdu málinu. Verjendur ákærðu hefðu hins vegar gert tvær misheppnaðar tilraunir til að sýna hve auðvelt væri að falsa tölvupóst.Þá sagði settur saksóknari að Jón Ásgeir Jóhannesson hefði héraðsdómi komið sér undan að svara spurningum um sölu á ýmsum hlutabréfum og framburður vitna í málinu bæri vott um húsbóndahollstu. Samstarfsmenn Jóns Ásgeirs reyndu án afláts að slá skjaldborg um hann en hann gæti ekki skýlt sér á bak við undirmenn sína þegar kæmi að ákvörðunum sem forstjóri einn gæti tekið.Sigurður Tómas sagði mörg brotanna hafa margþætt áhrif og að tilgangur þeirra hefði verið að slá margar flugur í einu höggi, bæði til að hylja önnur brot og fylla í skörð með þeim.Faðir Jóns Ásgeirs kostar málsvörn hansSaksóknari vitnaði enn fremur til orða Jóns Ásgeirs í fjölmiðlum að enginn hluthafa Baugs hefði orðið fyrir tjóni vegna málsins. Sagði Sigurður Tómas það marklaust í ljósi þess hve stór hluti hluthafa væri í fjölskyldu hans. Þetta mætti sjá af því að faðir Jóns Ásgeirs kostaði málsvörn hans.Um meint brot á hlutafélagalögum sagði Sigurður Tómas að engin refsiákvæði væru í lögum sem sneru að lögaðilum heldur aðeins einstaklingum og því bæri að refsa einstaklingum fyrir brot á hlutafélagalögum.Málflutningur verður í allan dag og sömuleiðis á morgun enda málið mikið að vöxtum.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Fleiri fréttir „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Sjá meira