Nýbakaður faðir: Fjármálaráðherra sjái sóma sinn í að semja 11. september 2008 15:15 Kjartan Due Nielsen nýbakaður faðir.
Fjármálaráðherra ætti að sjá sóma sinn í því að semja við ljósmæður, segir nýbakaður faðir á sængurkvennadeild Landspítalans. Þar hafa verið miklar annir allt frá því að annað verkfall ljósmæðra hófst á miðnætti. Fram kom í hádegisfréttum Stöðvar 2 að sjö börn hefðu fæðst í nótt og að fæðing hefði verið hafin hjá ellefu konum. Vegna þessa annríkis þurfti að fá undanþágu frá verkfallinu til þess að kalla út fleiri ljósmæður. Hefur sængurkvennadeildin verði yfirfull og voru þrjár konur frammi á gangi á deildinni í morgun. Kjartan Due Nielsen var ásamt barnsmóður sinni á fæðingardeildinni í nótt og í morgun þar sem þau eignuðust dóttur. Aðspurður segir hann nýbakaða og verðandi foreldra finna fyrir óþægindum. „Í því herbergi sem við erum er gert ráð fyrir tveimur konum en nú eru þar þrjár konur og þannig er það á flestum stofum á sængurkvennadeildinni," segir Kjartan. Þetta þýði meira ónæði og umstang á staðnum og þá séu konur sendar fyrr heim en ella vegna ástandsins. Ekkert sé hins vegar upp á ljósmæður að klaga því þær geri sitt besta. Spurður um framgöngu stjórnvalda, sem hingað til hafa ekki viljað ganga að kröfum ljósmæðra, segir Kjartan að viðbrögð þeirra séu fráleit. „Mér finnst að fjármálaráðherra eigi að sjá sóma sinn í að semja við ljósmæður. Þær óska eftir hærri launum sem samsvara menntun þeirra. Þetta eru réttmætar kröfur og ég styð þær," segir Kjartan og bætir við: „Ég held að heilbrigðisráðherra ætti að koma hingað á gangana og sjá hvernig staðan er."
Mest lesið Eldgos hafið Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent Fleiri fréttir Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Sjá meira