Hugmyndir um sameiningu bankanna fjarstæðukenndar 31. október 2008 18:30
Forsætisráðherra skaut föstum skotum á Björgólf Thor Björgólfsson athafnamann á aðalfundi LÍÚ í dag og sagði hugmyndir hans um sameiningu bankannan hafa verið fjarstæðukenndar. Geir sagði að farið hefði verið út í afar sársaukafullar aðgerðir til þess að lágmarka skaða samfélagsins vegna fjármálakreppunnar, kreppu sem ekki ætti sinn líka síðastliðin 80 ár. Þá sagði hann óheppilegt ef einhverjir gerðu því skóna að ríkisstjórnin hefði ekki unnið að heilindum í málinu. Það væri þó skiljanlegt að menn bentu á aðra en sjálfa sig. Sagði Geir það þekkt að einstaklingar sem yrðu gjaldþrota kenndu bankanum sínum um þar sem þeir hefðu ekki fengið meira fé. Á sama hátt kenndu bankar Seðlabanka sínum um hið sama. Enn fremur sagði hann að á sama hátt og bankar yrðu einhvern tíma að setja niður fótinn gagnvart viðskiptavinum sínum þyrftu Seðlabankar einhvern tíma að gera það. Unnið hefði verið myrkranna á milli að því að reyna að leysa vanda bankanna áður en að fallinu kom og ýmsar hugmyndir skoðaðar. Margar þeirra hefðu falið í sér að ríkið yrði leggja fram tugi eða hundruð milljarða og jafnframt að þeir sem hefðu lagt fram hugmyndirnar myndu þá bjargast. Hann sagði mikið hafa verið rætt um hugmynd Landsbankans sem lögð var fram daginn áður en ríkið tók yfir Glitni í lok september. Fram kom í máli Björgólfs Thors Björgólfssonar í Kompási á mánudag að forsvarsmenn Landsbankans hefðu þá lagt til að Glitnir, Landsbankinn og Straumur sameinuðust og ríkið keypti þriðjungshlut í sameinuðum banka fyrir 200 milljarða króna. Landsbankinn myndi eignast tvo þriðju hlutafjár og en hlutahafar Glitnis ekkert. „Það lá fyrir að þessar hugmyndir voru fjarstæðukenndar og gengju ekki upp og mönnum var sagt það þótt þeim væri ekki sent skriflegt svar," sagði Geir um tilboðið. Þá skaut hann föstu skotum á Björgólf: „Ummæli þeirra sem nú koma fram og gagnrýna af mikill hörku verður að meta í því ljósi að þar bera menn saman þá niðurstöðu sem varð við atburðarás sem ekki varð. Sá samanburður er hagstæðari fyrir þann sem dregur hana upp en segir ekki alla söguna," sagði Geir.
Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Innlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent Fleiri fréttir Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum Sjá meira