Innlent

Björn fagnar ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar

MYND/Pjetur

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra fagnar þeirri ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra að fela sendifulltrúa í Róm að hlutast til um mál Keníamannsins Pauls Ramses.

Á heimasíðu sinni gantast Björn með að líklega hafi hann verið of jákvæður í svörum sínum við spurningum fjölmiðla um ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar ,,því að hvergi hef ég heyrt eða séð neitt haft eftir mér um þetta framtak," segir Björn og bætir við:

,,Í stuttu máli fagnaði ég því. Ég tók einnig fram, að Franco Frattini, utanríkisráðherra Ítalíu, hefði fram á þetta ár farið með Schengenmálefni sem einn af framkvæmdastjórnarmönnum ESB og varaforseti framkvæmdastjórnarinnar. Hann hefði því yfirburðaþekkingu á þessu sviði og þar á meðal á framkvæmd Dublinsamningsins. Auk þess þekkti hann til hér á landi og rödd Íslands ætti örugglega hljómgrunn hjá honum."

Björn bendir þó á að enginn sem þekki til evrópskra útlendingamála undrist að ríki fari að Dyflinnarsamningnum. ,,Ég hef áður bent á það hér á síðunni, að Grikkir standa frammi fyrir miklum vanda í þessu efni, því að hertar aðgerðir gegn ólöglegum innflytjendum í vesturhluta Miðjarðarhafs hefur leitt til mikillar fjölgunar þeirra í Grikklandi og á Kýpur," segir Björn.

Björn víkur hins vegar ekkert að áeggjan Ágúst Ólafs Ágústssonar, varaformanns Samfylkingarinnar, um að hann endurskoði ákvörðun Útlendingastofnunar í máli Ramses.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×