Björn fagnar ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar 7. júlí 2008 22:36 MYND/Pjetur
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra fagnar þeirri ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra að fela sendifulltrúa í Róm að hlutast til um mál Keníamannsins Pauls Ramses. Á heimasíðu sinni gantast Björn með að líklega hafi hann verið of jákvæður í svörum sínum við spurningum fjölmiðla um ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar ,,því að hvergi hef ég heyrt eða séð neitt haft eftir mér um þetta framtak," segir Björn og bætir við: ,,Í stuttu máli fagnaði ég því. Ég tók einnig fram, að Franco Frattini, utanríkisráðherra Ítalíu, hefði fram á þetta ár farið með Schengenmálefni sem einn af framkvæmdastjórnarmönnum ESB og varaforseti framkvæmdastjórnarinnar. Hann hefði því yfirburðaþekkingu á þessu sviði og þar á meðal á framkvæmd Dublinsamningsins. Auk þess þekkti hann til hér á landi og rödd Íslands ætti örugglega hljómgrunn hjá honum." Björn bendir þó á að enginn sem þekki til evrópskra útlendingamála undrist að ríki fari að Dyflinnarsamningnum. ,,Ég hef áður bent á það hér á síðunni, að Grikkir standa frammi fyrir miklum vanda í þessu efni, því að hertar aðgerðir gegn ólöglegum innflytjendum í vesturhluta Miðjarðarhafs hefur leitt til mikillar fjölgunar þeirra í Grikklandi og á Kýpur," segir Björn. Björn víkur hins vegar ekkert að áeggjan Ágúst Ólafs Ágústssonar, varaformanns Samfylkingarinnar, um að hann endurskoði ákvörðun Útlendingastofnunar í máli Ramses.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira