Vaktarabærinn endurgerður í upprunalegri mynd 26. júní 2008 13:12 Garðastræti 23
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun afsal á fasteigninni Garðastræti 23 til Minjaverndar hf. og er gert ráð fyrir að kaupverð hússins verði innt af hendi með endurgerð þess í upprunalegri mynd í miðborg Reykjavíkur. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að ,,húsið sem stendur á lóðinni, Vaktarabærinn, var að öllum líkindum fyrsta timburhúsið sem byggt var í Grjótaþorpi, fyrir utan hús Innréttinganna við Aðalstræti, og er vegna aldurs sjálfkrafa friðað samkvæmt lögum um húsafriðun. Húsið er talið vera frá áriinu 1844-1848 er þess fyrst getið sem skemmu úr timbri við bæinn Grjóta sem Grjótaþorpið er kennt við en holtið þótti grýtt og var grjót úr því m.a. notað við byggingu Dómkirkjunnar. Byggt hefur verið við húsið 1860 og aftur 1880 og er það þá komið í núverandi stærð. Nafn sitt dregur húsið af því að Guðmundur vaktari Gissurarson, sem bjó í Grjóta, byggði skemmuna en síðan eignaðist það Stefán Egilsson, faðir Sigvalda Kaldalóns og Eggerts Stefánssonar. Sigvaldi fæddist í húsinu og bjó þar fyrstu átta ár ævi sinnar. Húsið er um 150 ára gamalt og er einstakt í menningarsögulegu tilliti."Gert er ráð fyrir að Minjavernd hf. taki við húsinu í núverandi ásigkomulagi og standi fyrir, beri ábyrgð á og fjármagni endurbyggingu þess að öllu leyti. Á lóð Garðastrætis 23 eru leifar gamla torfbæjarins í Grjótaþorpi og er Minjavernd hf. kunnugt um það. Framkvæmdum verður hagað í samræmi við þjóminjalög og mun Minjavernd bera þann kostnað sem hlýst af fornleifakönnun. Komi til þess að fram þurfi að fara fornleifarannsókn mun Reykjavíkurborg bera af henni allan kostnað.
Mest lesið Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Innlent Fleiri fréttir Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Sjá meira