Innlent

Helmingur ökumanna ók of hratt í skólahverfi

Þrjátíu og þrír ökumenn óku of hratt í Breiðumýri á Álftanesi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðumýri í suðurátt, á móts við Álftanesskóla í eina klukkustund eftir hádegi.

Sextíu og fjögur ökutæki fóru þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 52%, of hratt. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 45 kílómetrar á klukkustund en þarna er 30 kílómetra hámarkshraði. Níu óku á 50 kílómetra hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 57.

Gangbrautir eru í Breiðumýri og var gangbrautarvörður að störfum á meðan lögreglan vaktaði götuna. Mörg börn voru á heimleið frá skóla á þessum tíma og akstursskilyrði voru slæm, rok og mikil rigning, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×