Innlent

Leitað að þjófi sem rændi N1 í Kópavogi

Þjófur laumaðist í peningakassann í verslun N- eins við Stóra Hjalla í Kópavogi á tólfta tímanum í gærkvöldi og komst á brott með tugi þúsunda króna.

Þegar afgreiðslumenn urðu þess varir að peningana vantaði , sáu þeir athæfi þjófsins á upptöku í eftirlitsmyndavél og kölluðu á lögreglu. Lögreglumenn báru kennsl á manninn af fyrri viðskiptum við hann og er hans nú leitað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×