Vegur á Hólmsheiði vegna flugvallar? 14. maí 2008 18:54
Umdeildur vegur sem verið er að leggja upp á Hólmsheiði ofan Reykjavíkur er teiknaður sem tengivegur við flugvöll á heiðinni. Ákvörðun um vegarlagninguna var tekin í tíð fyrrverandi meirihluta í borgarstjórn.Áætlað er að vegarlagningin upp á Hólmsheiði þessa dagana þýði að ryðja þurfi burt 4.200 trjáplöntum, samkvæmt gögnum frá Skipulagsstofnun, en trén eru sögð að meðaltali sjötíu sentimetra há og tíu til fimmtán ára gömul. Frá framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkurborgar fékk Stöð 2 þá skýringu að vegurinn sé á aðalskipulagi en megintilgangur vegagerðarinnar nú sé að stytta vörubílum leið að losunarstað fyrir jarðveg. Í tilkynningu til Skipulagsstofnunar tiltekur Reykjavíkurborg einnig þá skýringu að vegarlagningin sé til að bæta aðgengi almennings að útivistarsvæðum. Júlíus Benediktsson, íbúi í Grafarholtshverfi, efast um þessar skýringar. Hann telur að borgaryfirvöld séu ekki að segja alla söguna. Eitthvað meira sé undirliggjandi. Ef menn skoði þessar framkvæmdir þá gefi þessi vegur til kynna mun stærri aðgerðir.Hólmsheiðin er reyndar það svæði sem áhugamenn um nýjan flugvöll í stað Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri hafa helst horft til en nú standa yfir veðurfarsrannsóknir sem eiga að skera úr um hvort svæðið sé hæft undir flugvöll. Þegar teikningar sem þegar liggja fyrir um flugvöll á Hólmsheiði eru skoðaðar sést að þar einnig búið að teikna inn vegtengingar flugvallarins við gatnakerfi Reykjavíkur og svo vill til að nýji vegurinn, sem nú er verið að leggja, er einmitt hugsaður sem önnur megintengileið flugvallarins við byggðina. Ákvörðun um vegarlagninguna upp á Hólmsheiði var tekin með samþykkt fjárhagsáætlunar í tíð síðasta meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur.
Mest lesið Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira