Innlent

Erlendir greiðslukortaþjófar úrskurðaðir í gæsluvarðhald

Rúmenarnir þrír sem handteknir voru í gær vegna gruns um þjófnað úr hraðbönkum á höfuðborgarsvæðinu hafa verið úrskurðaðir í viku langt gæsluvarðhald. Þetta staðfesti Ómar Smári Ármannsson hjá auðgunarbrotadeild lögreglunnar í samtali við Vísi.

Um er að ræða tvo karlmenn og eina konu sem liggja undir grun en hundruðum þúsunda var stolið og er talið að fólkið hafi notast við stolin eða fölsuð erlend greiðslukort.

Fólkið handtekið í gær eftir nokkra leit og lagði lögregla hald á fjármuni, kort og ýmis önnur gögn sem voru í fórum fólksins. Alls var á þriðja hundrað korta í fórum fólksins en þau voru með greiðslukortaupplýsingum sem talið er að aflað hafi verið með ólögmætum hætti af kortum grunlausra kortanotenda erlendis.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×