Samkeppniseftirlitið er til fyrirmyndar 14. maí 2008 16:21 Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra, Páll Gunnar Pálsson forstjóri og Gylfi Magnússon stjórnarformaður.
Í dag afhenti Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, Samkeppniseftirlitinu viðurkenningu sem ríkisstofnun til fyrirmyndar 2008. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri, veitti viðurkenningunni viðtöku fyrir hönd stofnunarinnar. Einnig afhenti ráðherrann Kvennasviði Landsspítala háskólasjúkrahúss og Geislavörnum ríkisins hvatningarviðurkenningar. „Í janúar skipaði fjármálaráðherra nefnd til þess að velja ríkisstofnun sem skarað hefur fram úr og verið til fyrirmyndar í starfi sínu," segir í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. Í nefndinni voru Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, Ásdís Halla Bragadóttir, stjórnsýslufræðingur, og Birna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Glitnis. Með nefndinni störfuðu Angantýr Einarsson, skrifstofustjóri og Arnar Þór Másson stjórnmálafræðingur fjármálaráðuneytinu. „Óskað var eftir tilnefningum frá ráðuneytum auk þess sem ríkisstofnanir gátu sjálfar óskað eftir þátttöku. Alls tóku 15 stofnanir þátt að þessu sinni. Horft var til stefnumótunar, framtíðarsýnar og markmiðssetningar stofnana við ákvörðun um valið. Einnig var horft til stjórnunaraðferða og hvernig stjórnendur og starfsmenn fylgja eftir að settum markmiðum sé náð. Skoðað var hvaða aðferðum stofnanir beita við að þróast og bæta árangur sinn í síbreytilegu umhverfi, auka nýjungar í þjónustu við notendur og bæta liðsheild innan stofnananna. Jafnframt lagði nefndin áherslu á að starfsemi ríkisstofnunar til fyrirmyndar væri árangursrík, skilvirk og að stjórnendur legðu áherslu á að gera betur." Í niðurstöðum nefndarinnar segir um vinningshafann: „Frá því að ný samkeppnislög tóku gildi árið 2005 hefur uppbygging Samkeppniseftirlitsins verið markviss. Stofnunin starfar eftir skýrri stefnu og markmiðum og leggur mikinn metnað í að hrinda þeim í framkvæmd með gagnsæjum ferlum sem endurskoðaðir eru reglulega. Skipulag stofnunarinnar er verkefnamiðað og byggist á jafningjastjórnun þar sem starfsfólk er virkjað til ábyrgðar. Árangur starfseminnar kemur m.a. fram í bættri aldurssamsetningu mála og auknum málshraða á undanförnum árum. Vel er haldið á starfsmannamálum innan stofnunarinnar og með markvissum starfs- og launasamtölum er lagður grunnur að frammistöðumati sem tekur mið af ábyrgð og árangri. Þá er lögð áhersla á hagkvæmni við nýtingu fjármuna sem kemur m.a. fram í virku tímaskráningarkerfi. Stjórnendur stofnunarinnar hafa skýra sýn á framtíð hennar og þann árangur sem ætlunin er að ná á næstu árum. Augljóst er að mikið og metnaðarfullt starf fer fram hjá Samkeppniseftirlitinu og eru stjórnendur meðvitaðir um stöðu stofnunarinnar í samfélaginu. Nefndin telur að aðrar ríkisstofnanir gætu tekið sér stofnunina til fyrirmyndar á mörgum sviðum." Þetta er í sjöunda sinn sem ríkisstofnun til fyrimyndar er valin.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira