Hálfa öld í rusli Atli Steinn Guðmundsson skrifar 14. maí 2008 14:41 Óskar Ágústsson og Sigríður Guðrún Jónsdóttir eiginkona hans. MYND/Reykjavíkurborg
Óskar Ágústsson, bílstjóri hjá Sorphirðunni í Reykjavík, hefur um þessar mundir náð 50 ára starfsaldri en hann er 66 ára. Ljóst er að Óskar man tímana tvenna í sorpmálum höfuðborgarsvæðisins. Í spjalli við Vísi segist Óskar hafa byrjað ungur að vinna hjá Ríkisskipum en verkstjórinn þar rekið hann. Þá hafi hann starfað um hríð hjá Eimskip en fært sig svo yfir í sorphirðuna vorið 1958 þar sem frændi hans var verkstjóri. Þar hefur Óskar unnið síðan og fagnar 50 ára starfsafmælinu á Kaffi Flóru í Grasagarði Reykjavíkur klukkan þrjú á morgun. Óskar segir að fyrstu árin hafi sorpinu verið sturtað í sjóinn við Skerjagranda. „Ég fór á sjóinn, Skjaldbreið, Lagarfoss, Reykjafoss og Gullfoss. En ég ætlaði ekkert að vera alla ævi í því," segir Óskar. Hann segir frá því að þegar hann hóf störf hafi 20 bílar sinnt sorphirðu í borginni. Þeir hafi hins vegar verið mun minni en þeir sem nú eru notaðir. Tekið hafi klukkutíma að fylla hvern bíl og þá var farið og losað, fyrst í sjóinn en svo uppi á Höfða þar sem búinn var til áburður úr sorpinu. „Þetta voru allt olíutunnur og miklu erfiðara að lyfta þeim. Núna eru þetta plasttunnur og miklu meira sorterað," segir Óskar. Hann segist ekki vita hve lengi enn hann starfi, sennilega bara á meðan heilsan leyfi. „Ég stunda líkamsrækt og ég stunda sundið," segir Óskar og lætur engan bilbug á sér finna.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Innlent Fleiri fréttir Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Sjá meira