Innlent

Orustuþotur á flugsýningu í Reykjavík

Mirage orustuþotur franska flughersins taka þátt í flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli um aðra helgi en sýningin verður sú viðamesta sem haldin hefur verið hérlendis um árabil og hápunktur Flugviku, sem hefst í Reykjavík á sunnudag.

Flugmálafélag Íslands stendur að hátíðinni ásamt helstu aðilum tengdum flugi á Íslandi. Ýmis flugatriði verða í boði í borginni þessa viku, meðal annars fallhlífastökk, flugmódelflug, hópflug og listflug.

Þá munu farþegaþotur Icelandair fljúga yfir borginni sem og gamli þristurinn Páll Sveinsson og flugsveit Landhelgisgæslunnar verður með sýningaratriði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×