Hundruð milljóna föst í kerfinu 15. október 2008 12:16
Illa gengur hjá útflutningsaðilum að fá greitt fyrir vörur sínar þar sem erlendir bankar hafa margir fryst greiðslur hingað til lands. Talið er að mörg hundruð milljónir króna séu fastar í kerfinu. Utanríkisviðskipti hafa nánast verið í lamasessi síðan ríkið tók yfir viðskiptabankana í síðustu viku. Illa gengur hjá útflutningsaðilum að fá greitt fyrir vörur og þá hafa innflutningsaðilar ekki fengið gjaldeyri til að greiða sína reikninga. Svokölluð swift-númer á íslenskum reikningum hafa verið gerð óvirk sem þýðir að ómögulegt er að millifæra peninga til og frá landinu. Margir erlendir bankar hafa því stöðvað millifærslur með þeim afleiðingum að mörg hundruð milljónir króna í erlendri mynt eru nú fastar í kerfinu og komast hvorki lönd né strönd. Námsmönnum erlendis gengur illa að millifæra peninga og líða margir nú alvarlegan skort. Nánast ómögulegt er fyrir almeninng að kaupa gjaldeyri hér á landi og í einum banka - sem fréttastofa hafði samband við - voru hvorki til evrur né dollarar. Hjá Seðlabanka Íslands fengust þær upplýsingar að unnið sé að því að leysa vandann og fólk beðið um að sýna biðlund. Bankinn greip í morgun til þess úrræðis að bjóða út 25 milljónir evra á uppboði til fjármálafyrirtækja til að reyna að ákvarða gengi krónunnar. Hæsta kauptilboðið nam 160 krónum á evru en lægsta tæpum 150 krónum. Fram kemur í tilkynningu frá Seðlabankanum að um bráðafyrirkomulag gjaldeyrisviðskipta sé að ræða. Uppboð verða haldin daglega og mun gengi krónunnar ráðast af framboð og eftirspurn gjaldeyris hverju sinni.
Mest lesið Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Innlent Ekið á hjólreiðamann Innlent Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi Innlent Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Erlent Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Erlent Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Innlent Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Innlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent „Ég elska þennan flugvöll“ Innlent Fleiri fréttir Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Fundu snyrtistofuna við húsleit í kjölfar umferðareftirlits Tölvuþrjótar hrella háskólanemendur og Reform rúllar upp kosningum á Englandi Tilbúinn í umræður um hlaðvörpin en afdráttarlaus varðandi Rás 2 Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85 prósent Ekið á hjólreiðamann Sigríður hjólar í Hönnu Katrínu: Eini ráðherrann „sem vill hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“ Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi „Þverhausar“ komi í veg fyrir umræðu um sameiningu fyrir vestan Fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól í Reykjavík Einn öskrandi og til ama og annar sofandi á gatnamótum Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka „Ég elska þennan flugvöll“ „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Svona gekk að flytja vindmyllurnar Babb í bátinn enn eina ferðina „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Tveggja bíla árekstur á Reykjavíkurvegi „Við erum bara að mótmæla“ Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Milljónum í reiðufé stolið Milljóna þjófnaður úr spilakössum, flóknar meirihlutaviðræður og lóð gróðrarstöðvar til Víkings Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Kylfingar í Mosó geta farið að dusta rykið af golfdóti sínu Sjá meira