64 hópuppsagnir í október 4. nóvember 2008 18:10
Í októbermánuði bárust Vinnumálastofnun 64 tilkynningar um hópuppsagnir þar sem sagt var upp samtals um 2.950 manns. Um 46% tilkynninganna voru vegna starfsmanna í mannvirkjagerð. Uppsagnir í fjármálastarfsemi, þar sem uppsagnir Landsbanka, Glitnis og Kaupþings vega þyngst, eru um 20% af tilkynningunum. Tæp 14% uppsagnanna koma úr verslunargeiranum og um 11% úr iðnaði, í flestum tilvikum tengdur mannvirkjagerð. Um 4% uppsagna er í sérfræðistarfsemi og útgáfustarfsemi og tæp 4% uppsagnanna eru úr flutningastarfsemi þar sem póstdreifing vegur þyngst. Loks voru 1% uppsagna úr ýmiskonar þjónustu. Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar. Þar segir einnig: „Um 93% uppsagnanna eru vegna starfsfólks á höfuðborgarsvæðinu en aðrar uppsagnir dreifast á Suðurnes, Vesturland Norðurland eystra og Suðurland. Heildarfjöldi starfsmanna þeirra fyrirtækja sem tilkynntu uppsagnir er tæplega 11.000 og því eru þessi fyrirtæki sem um ræðir að segja upp um 28% starfsmanna sinna að jafnaði. Mjög misjafnt er þó milli atvinnugreina hve hátt hlutfallið er. Þannig eru fyrirtæki í mannvirkjagerð að jafnaði að segja upp ríflega 42% sinna starfsmanna og er dreifingin allt frá 15% upp í 100%. Hlutfallið er svipað í flutningastarfsemi eða rúm 40%. Í iðnaði, sérfræðilegri starfsemi og ýmissi þjónustu er hlutfallið nálægt 35%, 20% í verslun og um 16% í fjármálastarfsemi. Uppsagnirnar koma til framkvæmda allt upp í 6 mánuði. Upplýsingar um hvenær nákvæmlega einstakar uppsagnir koma til framkvæmda eru fremur óljósar, en þó má segja að á tímabilinu 1-3 mánuðir sé algengast, nema í fjármálastarfsemi þar sem um er að ræða tímabil sem nær yfir 3-6 mánuði. Flestar þessara uppsagna koma til framkvæmda um næstu mánaðarmót, og svo um áramót og um mánðarmótin jan./feb. 2009. Ástæður uppsagna eru nánast alltaf verkefnaskortur, fjárhagserfiðleikar og óvissan framundan. Margir eru því að segja upp til að búa sig undir erfiða stöðu eftir 2-3 mánuði og vonast til að geta endurráðið starfsfólk að einhverju marki áður en til starfsloka þeirra kemur ef verkefnastaða gefur tilefni til. Alls hefur yfir 4.400 manns verið sagt upp á árinu 2008 með hópuppsögnum. Stærstur hluti uppsagnanna barst í lok október eða um 67%, eða um 2950 manns frá 64 fyrirtækjum. Fram að því höfðu borist frá 0 til 4 tilkynningar í hverjum mánuði."
Mest lesið Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Erlent Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Innlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Flughált í höfuðborginni og víðar um land Innlent Ingibjörg býður sig fram í formanninn Innlent Fleiri fréttir Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Sjá meira