Mikilvægt að rannsókn á peningamarkaðssjóðum verði hraðað Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. nóvember 2008 12:39 Jóhann Hafstein lögmaður.
ERGO lögmenn hafa til skoðunar fjölmörg mál þeirra sjóðsfélaga sem áttu hlutdeildarskírteini í peningamarkaðssjóðum bankanna og eru að kanna réttarstöðu þeirra. Eins og kunnugt er voru peningamarkaðssjóðir viðskiptabankanna leystir upp í síðustu viku og innistæður greiddar inn á innlánsreikninga Sjóðseigendur fengu þó einungis hluta af peningum sínum til baka. Jóhann H. Hafstein, lögmaður hjá ERGO lögmönnum, telur líklegt að dómstólar muni eiga síðasta orðið í þessum efnum, enda hafi bankarnir slitið sjóðunum án fyrirheita um frekari greiðslur. Jóhann bendir sérstaklega á að ekki séu til lög um hópmálsóknir, en til skoðunar komi þó sameiginleg málsókn á grundvelli úrræða í einkamálalögum um svokallaða samlagsaðild tveggja eða fleiri aðila til að sækja mál í félagi. „Ég tel mikilvægt að rannsókn málsins verði hraðað eins og kostur er," segir Jóhann. „Það getur skipt sköpum varðandi skoðun á atriðum sem varða fjárfestingar sjóðanna, hvort og þá með hvaða hætti eignastaða sjóðanna tók breytingum í aðdraganda bankakreppunnar og með hvaða hætti undirliggjandi eignir voru verðmetnar við útgreiðslu úr sjóðnum." Þá bendir Jóhann á að það hvíli skylda á bönkum eða rekstrarfélögum sjóðanna að veita umræddar upplýsingar. Þá sé einnig til skoðunar hjá lögmannsstofunni gegn hverjum kröfur í slíkum málum skuli beinast. „Það ríkir mikil óvissa um hvort eignir séu á móti hugsanlegum bótakröfum í búum gömlu bankanna eða hvort rekstrarfélög sjóðanna hafi bolmagn til að greiða hugsanlegar bætur," segir Jóhann.
Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Vara við snörpum vindhviðum Veður Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Fleiri fréttir Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Sjá meira